Lesbók12.03.04 — Númi Fannsker

Að sjá þessa fermingardrengi! Dettur engum í hug að klippa af þeim ógreiddan lubbann? Er þetta fólkið sem nú á að taka í fullorðinna manna tölu? Sveijattan! Eiga þessir labbakútar ekki foreldra sem geta lagt þeim línurnar?

Ekki vil ég þurfa að eiga allt mitt í ellinni undir slíkum kókþambandi gemsamasandi fuglahræðum. Þetta er ekki talandi og svo á að fara að verðlauna þessa aumingja fyrir að ganga í trúfélag sem enginn tekur alvarlega, með því að ausa yfir þá tölvum, myndavélum og farsímum. Til hvers í uppþemdum andskotanum?!

Nær væri að senda þá á sjó!

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182