Hinir grunuðu eru allir af erlendu bergi brotnir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að sprengjuvargi í tengslum við rannsókn á sprengju sem fannst neðst á Hverfisgötu í Reykjavík í gærmorgun.

Hafa sérfræðingar rýnt í afbragðs góða mynd úr eftirlitskerfi og þrengt leitina niður í þrjár persónur, sem allar eru heimsþekktar og tiltölulega auðþekkjanlegar; Fróða Bagga, Mónu Lísu og hinn illa keisara Palpatine.

Reynir lögregla nú að leita uppi þá grunuðu, með hjálp víkingasveitarinnar, öflugrar tímavélar og bókasafnsfræðings.

Hróbjartur er miður sín yfir því að fasistastjórnin á Íslandi sé sífellt að skemma fyrir manni.

„Mér finnst þetta bara ógeðslega leiðinlegt. Það er alltaf verið að skemma fyrir manni,“ segir Hróbjartur Veturliðason, grafískur hönnuður. Hann varð fyrir því óláni í morgun að kanínan hans, hún Sigurdís, var sprengd í loft upp á Hverfisgötu.

Ég setti hana bara í kassann sinn og geymdi hana úti, rétt á meðan ég skaust inn á Gráa köttinn í kaffi - enda eru gæludýr bönnuð þar. Svo heyrði ég bara hvell og þegar ég kom út var löggan búin að sprengja hana Sigurdís mína. Þetta eru bara fasistar,“ sagði Hrjóbjartur, hágrátandi í samtali við Baggalút.

Hann ætlar að jarða leifarnar af kanínunni sinni, annað eyrað og brotna framtönn, í Hljómskálagarðinum eftir hádegi.

Hvíti riddarinn hefur unnið ýmis trúnaðarstörf fyrir skáksambandið.

Hvíti riddarinn, sá hægri, hefur ákveðið að bjóða sig fram til biskups. Hann segir að margir hafi hvatt sig til þess að gefa kost á sér og hann sé tilbúinn í slaginn.

Í yfirlýsingu segir riddarinn að hann telji sig fullfæran um að sinna hlutverki biskups á hvaða taflborði sem er, enda sé „skítlétt að fara bara á ská“.

Hann kveðst spenntur fyrir því að skipta um stað á taflborðinu, enda séu hrókar alls ekki jafn skemmtilegur félagsskapur og af er látið. Þá hlakkar hann mikið til að skipta um lit, enda þykja honum svartir biskupar „miklu meira töff“ en þeir hvítu – og nefnir hann Desmond Tutu sem dæmi um slíkt.

Ekki náðist í hinn hvíta riddarann við vinnslu fréttarinnar, en ekki er ólíklegt að hann hugsi sér líka til hreyfings.

Þessar konur voru mættar niður á Laugaveg snemma í morgun til að skoða í tilvonandi HogM-glugga.

Íslenskar konur eru í gríðarlegu tilfinningalegu uppnámi vegna misvísandi frétta af opnun HogM verslunar hér á landi.

Víða mátti heyra fagnaðaróp snemma í morgun þegar fréttir bárust af opnun HogM við Laugaveg. Skömmu síðar var fréttin dregin til baka og í kjölfarið fór ógurleg örvæntingar- og grátkveinabylgja um bæi og sveitir landsins.

Eitthvað var um að karlmenn fengju taugaáfall vegna frétta um opnunina í morgun, en þeir hafa flestir jafnað sig að fullu eftir að þær voru dregnar til baka.

Maðurinn hefur ekki farið út að leika í 48 ár.

Framkvæmdastjóri á sextugsaldri ætlar að skrópa í vinnu í dag og fara þess í stað út að leika í snjónum.

„Veistu, ég nenni bara ekki að vera spólandi út um allan bæ á jeppanum, blautur í lappirnar og pirraður – þegar ég get farið hérna út í garð, búið til snjókalla og engla, hoppað fram af bílskúrnum, étið snjó og brutt grýlukerti – og dúndrað snjóboltum í rúðuna hjá pirruðu kellingunni hérna á móti.“

Hefur hann þegar skorað á fjölmarga millistjórnendur, framkvæmdastjóra og stjórnarmenn að koma og leika í dag, verða „almennilega rassblautir“ og fá svo sjóðheitt kakó hjá mömmu á eftir.

Dr. Hörður við munalostadýflissu sem talið er öruggt að Ingólfur Arnarson hafi reist.

Fornleifafræðingar hafa fundið minjar sem benda til þess að klámvæðingin svokallaða hafi hafist mun fyrr en áður hefur verið talið – jafnvel við landnám.

Að sögn Dr. Harðar P. Einarz, fornleifasérfræðings, hafa m.a. fundist merki um mikla sleipiefnanotkun í grennd við landnámsbæ Ingólfs Arnarsonar ásamt vísbendingum um gríðarlega latex-litklæðaframleiðslu. Auk þess hafa fundist allnokkrir viðhengilimir, heillegar pungsköfur og klámfengnar rúnaristur á svæðinu.

Rennir fundurinn stoðum undir kenningu Dr. Harðar um að Íslendingar séu komnir af norskum swingklúbbi.

Þorró er holdgervingur þorrans.

Holdgervingur þorrans, ofurhetjan Þorró, er kominn til byggða. Honum sást bregða fyrir á ellefu þorrablótum víðsvegar um landið um síðustu helgi.

Þessi hálfbróðir jólasveinanna, samfeðra, sonur Leppalúða og leikkonunnar þokkafullu, Sophiu Loren, er af mörgum talinn hinn eini sanni boðberi þorrans.

Ekki eru allir sáttir við komu Þórrós, enda fylgir honum stækur óþefur, mikið fyllerí og óhemju magn af mysu - en hann er þekktur fyrir að súrsa allt sem hann kemst í tæri við; matvæli, fatnað, raftæki og hvaðeina. Þá er vægast sagt umdeildur sá siður hans að lauma súru hvalspiki í skó barna og margir sem hafa látið glepjast af vel kæstum vestfirskum glerhákarli í umbúðum utan af makkintossi, sem hann dregur úr pússi sínu og býður grunlausum þorrablótsgestum.

Guðmundur landsliðsþjálfari á eftir að taka afstöðu til bréfs Bjarna.

Bjarni Benediktsson, þingmaður, hefur sent bréf til HSÍ með ósk um að landsliðið dragi sig í hlé á EM í handbolta.

Hefur hann miklar og þungar áhyggjur af dómgæslunni í næstu leikjum og er þess fullviss að hún verði Íslendingum í óhag.

Því leggur hann til að liðið dragi sig þegar í stað út úr keppninni og einbeiti sér að æfingaleikjum hér heima, eða snúi sér alfarið að öðrum íþróttum.

Geir hefur ekki eignast neina nýja vini frá Hruni, ef frá eru taldir þingmenn VG.

Samkvæmt heimildum Baggalúts er Geir Haarde, fyrrum formaður, búinn að 'adda' Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra, sem 'vini' á samskiptasíðunni Facebook.

Ekki er ljóst hvor þeirra sendi vinabeiðnina, en Ögmundur hefur þó verið sýnu aktífari á síðunni en Geir – og m.a. ítrekað 'pókað' þingmenn Sjálfstæðisflokks, einkum formann hans.

Eftir þessar breytingar á Geir 12 vini og Ögmundur 3.

Selurinn hefur hlotið nafnið Hinrik prins, eftir eiginmanni Margrétar.

Gjöf Grænlendinga til Margrétar Þórhildar Danadrottingar í tilefni af 40 ára ríkisafmæli hennar þykir sérlega glæsileg og vekur mikla athygli.

Gjöfin er einstaklega tignarlegur sjálfdauður selur sem stoppaður var sérstaklega upp fyrir þetta tilefni.

Þykir þessi virðingarvottur jafnvel taka fram gjöfinni frá 30 ára ríkisafmælinu þegar drottningin fékk flösku af grænlenskum landa og karton af sérvöfðum sígarettum.

     1, 2, 3 ... 525, 526, 527  
Lesbók
Enter
 
Enter
 
Þjóðbók
Smælki

Jólasveinar

handhægu Maze-brúsarnir komnir aftur. Tilvaldir í lítil, spurul augu á jólaböllunum.

Bleik ský

Lítið notuð bleik ský til sölu. Svífa 5–10 metra, halda 100 kg.

Gefins

Leðurblaka. Kassavön og kelin.
A.v.á.

Ný sending!

Dönsku síðbuxurnar komnar. Margir litir. Margar stærðir.
Pústþjónusta Grétars.

Óska eftir

stúlku/stúlkum til að skemmta sæmilega þekktum Yemenskum kvikmyndaleikstjóra yfir helgina. Gott kaup. A.v.á.

Hreinlegur eldri

kvenmaður óskast á fámennt heimili. A.v.á.

Kolfinna
Baggalútur er hýstur með stolti hjá SKÝRR