Sálmur – Enter
Samiđ af gefnu tilefni.

Ţeir spáđu fyrir löngu langa ađ lífiđ myndi úr sér ganga
mannkyn inn í myrkriđ spranga, međan blésu hríđarél.
Heimur falla og farast myndi í fárviđri og ćgivindi
Ţetta fannst í fornu bindi — fremur hćpnu, ađ ég tel.
Verulega vafasömu, vísdómsriti, ađ ég tel.
— Ef heimurinn endar í nótt, ţá endar hann vel.

Ţig langar máske helst ađ hlćja ađ hrakspám löngu dauđra Maya.
Fjasi ţeirra frá ţér bćgja, fá ţér annađ hanastél.
En kannski, bara kannski mćtti kanna međ einföldum hćtti
Hvort spádóms-Mayinn mikli ćtti — međaldrćga tímavél.
Kannski á hinn mikli Mayi međaldrćga
— Ef heimurinn endar í nótt, ţá endar hann vel.

En örvćntu ţó ekki vćna, ekki á fornar rúnir mćna
Ţeir höfđu varla glóru grćna, gćjarnir viđ suđurhvel.
Og ţó svo heimur okkar endi — og allt í flennifokki lendi.
Einkabođ ég á ţig sendi og allt í ţínar hendur fel.
Já, elsku besta Maya–Mćja, mig í ţínar hendur fel.
— Ef heimurinn endar í nótt — ţá endar hann vel.

Lesbók frá fyrri tíđ

Nú á ađ reisa verksmiđju á Húsavík. Álver.

Auđvitađ í stíl viđ flunkunýja verksmiđju á Reyđarfirđi, sem einmitt er líka álver. Rétt eins og bákniđ í Straumsvík, sem reyndar stendur til ađ stćkka - altsvo álveriđ. Svo eru menn ađeins ađ gćla viđ ađ klastra upp eins og einni verksmiđju í Helguvíkinni - sennilegast verđur ţađ álver.

Hvađa spangólandi hugmyndaţurrđ er ţetta eiginlega? Er ekki hćgt ađ láta sér detta neitt annađ í hug en ţessi drepleiđinlegu álver?

Ál er ömurlegt.

Eins og hressilegar flenniverksmiđjur geta nú veriđ skemmtilegar og spennandi - ţá er nákvćmlega ekkert skemmtilegt og spennandi viđ ál. Ekki neitt.

Ál er Linda McCartney málmanna.

Af hverju er ekki hćgt ađ nota allt ţetta rafmagn úr öllum ţessum fínu virkjunum í eitthvađ skemmtilegt. Eitthvađ svolítiđ krassandi. Eitthvađ sem viđ getum montađ okkur af. Státađ.

Ţađ sýgur djúpfrystan aligölt ađ sitja uppi međ ţessa grćngolandi álömurđ sem meginframleiđsluvöru ţjóđarinnar. Ég meina. Finnar framleiđa síma, Danir legókubba - og Svíar, ţeir fá ađ framleiđa vopn! Svíar!

Af hverju gerum viđ aldrei neitt svoleiđis skemmtilegt.

Og ţá er ég ekki ađ tala um eitthvađ „vođa flippađ og íslenskt“, eins og grćnbaunaverksmiđju, selskinnssútun eđa ţorskhausaţurrkun. Ţađ er alveg hćgt ađ finna einhvern milliveg.

Persónulega teldi ég hinu íslenska kúli hollast ađ hefja hér framleiđslu mótorhjóla, vörubíla, rafmagnsbassa og/eđa skriđdreka. Einhverju dálítiđ karlmannlegu. Maskúlín. Ekki einhverju kellingarlegu. Í guđs bćnum. Ţađ er ekkert vandrćđalegra en kellingarlegar verksmiđjur.

Eins og til dćmis álver. Ţau eru einmitt viđurstyggilega kellingarleg. Úrelt, úr sér gengin og gamaldags; gagnast engum og gleđja engan.

---

En ef endilega ţarf ađ reisa öll ţessi déskotans álver. Ţá krefst ég ţess ađ ţau verđi í ţađ minnsta máluđ í mismunandi litum, skćrum.

Enter 6/3/06
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Myglar – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
     1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA