
Enn er hafinn sá skrípaleikur sem mest allra fer í mína fíngerðustu taugaenda og fyllir mig ógleði og gremju; nefnilega val kynþokkafyllsta karlmanns landsins.
Svei.
Keppast nú lausgyrtar ungskottur, innikróaðar uppgjafadræsur og másandi kynvillingar við að hringja inn með sleffyllt vit og kjósa sína eftirlætis órariðla.
Oftast nær eru það einhverjir alkóhóllegnir gjálífisgosar og vessahvetjandi fleðurakkar sem fá flest atkvæðin - og þá gjarnan þeir sem helst hafa glennt sig á forsíðum glansskeinirita ýmiskonar ellegar belgt sig ítrekað út með gífuryrðum og bólfaraglotti á sorpmettum sjónvarpsskjám landsmanna.
Takið ekki þátt í þessum niðurlægingarsirkús. Sýnið okkur karlmönnum vott virðingar, okkur sem enn berum höfuð hátt og látum ekki eingöngu stjórnast af þverkynja bossadilli og myndavélablossum.
Við erum ekki kynverur - við höfum ekki þokka. Við erum íslenskir karlmenn.
Menjasafn Baggalúts var opnað formlega á sunnudaginn að viðstöddu fjölmenni. Meðal gesta voru Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Juan Antonio Samaranch, forseti alþjóða ólympíunefndarinnar og Bjartmar Guðlaugsson, myndlistarmaður.
Það var safnstjórinn, Enter, sem klippti á þartilgerðan opnunarborða undir söng Kallakórs Baggalúts, sem flutti sönglög sem varðveitt eru í safninu. Að söng loknum lásu leikararnir Gottskálk Dagur Sigurðarson og Lilja Þórisdóttir upphátt úr bókunum Norskir gamanleikir, Segulvindmyllan og fleiri verkum við mikinn fögnuð.
Fyrir hönd þrífara komu saman þeir Barry Gibb, Númi Fannsker og hrúturinn Albert og fluttu lagið Kósíheit in the Stream, eftir Barry. Hrúturinn Albert söng fyrir hönd ærinnar Dollýar - sem var annar upprunalegu flytjendanna. Að lokum fluttu svo félagar í Konunglega danska leikhúsinu við Hlemm valdar samhverfur.
Á sama tíma var opnað myndlistargalleríið Gallerí Rúnk við Hverfisgötu - þar sem sýndar eru ljósmyndir og myndverk úr einkasafni Baggalúts.
Er það von Baggalúts að gestir geti átt dulítið athvarf, ellegar skjól í menjasafninu, en það er opið alla daga vikunnar milli kl. 00.00 og 24.00.