Um breytta ásjónu
Bjart bros mitt hefur vakið nokkra undrun meðal fastagesta og margar miselskulegar athugasemdir fallið þar um.
Ástæða þessara umskipta eru einkum þríþætt.
Í fyrsta lagi þótti mér við hæfi að varpa af mér vetrardrunganum nú þegar vorið er á næstu grösum.
Í öðru lagi þótti mér bjart bros endurspegla betur minn innri mann en sá ótta- og áhyggjusvipur sem áður birtist hér á Baggalút.
Síðast en ekki síst brosi ég breitt þessa dagana vegna þess að ég er nú í hópi stórmenna úr framvarðarsveit Baggalútíu á fyrstu síðu Heimavarnarliðsins.
Er það ekki ærin ástæða til að brosa?