Verri en niðurgangur, betri en drepsótt.
Tekið hefi ég eftir auglýsingum á nýjum hljóðdisk (óhljóðdisk) með Jóni úr ædoll frá því í fyrra.
Get ég ekki annað en þakkað pent fyrir þessa aðvörun sem þessi auglýsing er.
Réttast hefði verið að þessi auglýsing væri á vegum almannavarna.
Synd að geta ekki gefið -* eða hauskúpur.
Ég verð nú bara að spyrja um grundvöllinn að þessu. Er nokkuð einasta frumsamið lag á þessum hljómdiski? Af hverju ætti maður að borga fyrir að hlusta á einhvern þriðja flokks gaulara taka þessi lög?
Svona eins og húsmæður í Vesturbæ gera um hver jól þegar Páll Rósinkranz slátrar ástkærum slögurum?
Jón ældol og Helgi P. eru báðir með plötur þetta árið og eiga þessar plötur það sameiginlegt að jú, þeir eru að gera eitthvað við lögin annað en orginalarnir, ÞEIR DRAGA ÚR ÞEIM OG BÆTA SKO ENGU VIÐ!