Uppskrift dagsins er að þessu sinni uppskrift að vandræðum.
Í góð vandræði fyrir einn þarftu:
* 2egg
Hafið eggin meðferðis með leið S3 eða hvaða þeim vagni er gengur niðurað lækjatorgi. Mæli einnig með vagninum hans Ívars.
Gangið rólega, yfirvegaðir í fasi svo lítið beri á eggjunum í átt að stjórnarráðinu.
Seilist velega í vasann eftir eggjunum og grýtið þeim beint í stjórnarráðið eitt í einu.
Komið yður síðan vel fyrir í næsta strætisvagnaskýli og bíðið eftir að vandræðin verði til búin.
Gott er að njóta nýbakaðra vandræða í yfirheyrslu hjá varðstjóra lögregluembættisins í Reykjavík. Og með smá sekt.
[veinar af hlátri] Minn vagn gengur bara niðrá hlemm en ekki á Lækjartorg
Jæja, það má líklega ganga bara þaðan ef maður vill frekar nota þinn vagn. Er hann ekki annars þægilegur?
Jú, minn vagn er barasta ágætur... stingur svolítið í stúf en ágætur samt.