— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
albin
Heiðursgestur og  skriffinnur.
Pistlingur - 1/11/03
Kynlíf selur

Það er eftirtektarvert hvað margir dagskrárliðir þrífast á kynlífi.

Þessa dagana hefi ég haft meira aðgengi að kassa þeim er við imba er kenndur. Það hefur haft þær afleitu hliðarverkanir að æ meiri tíma er eytt við fyrr nefndan kassa. Og það á kostnað gæðamiðla á við þennan.

Á þessu glápi hefur óneitanlega orðið vart við hve margir dagskrárliðir snúast um kynlíf.

"The L word" Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar og hlakkaði til að horfa á málvöndunarprógam eða tungumálakenslu. En nei. Þarna var hvorki um málvöndunar þátt að ræða né tungumálakenslu, þótt að tungumál sé hátt skrifað í þessum þætti, að vísu á lægra plani en ég gerði ráð fyrir.

"Mile High" Ok... þurfti kanski ekki að koma mér á óvart, þar sem þetta er einnig nafn á "klúbbi"
Þetta er þáttur um "starfsfólk" flugfélags, en eins og svo margir þættir, þá er flugfélagið bara skálkaskjól. Minnir mig á ódýra klámmynd því söguþráðurinn er styttri en kynlífið hjá þeim.

"Nip/Tuck" Ég hélt að hér væri um að ræða fræðslumyndband um lýtaskuðlækningar. Það var að litlu leiti rétt. Visslega koma þær við sögu, en læknunum er þykir áríðandi að stunda náttúrunar glímutök við skjólstæðinga sína.

Þetta er bara brot af öllum dagskrárliðum sem eru í gangi, en af þessu að dæma selur kynlíf ágætlega. Greinilega er auðvelt að gera lélega þætti spennandi með því að krydda þá aðeins með holdi og réttum hreyfingum, já og á réttu "tungumáli".

Hvað með aðra þætti, nóg er af lélegum þáttum. Myndi smá kynlíf bæta þá (Þá á ég ekki við að stunda kynlíf í staðinn fyrir að horfa á þáttinn, sem er augljóslega betra) Það mætti velta því lengi fyrir sér, en ég ætla að sleppa því. Þess í stað eru hér nokkrir þættir sem ég held að kynlíf gæti ekki bjargað.
[listi]
[atriði]Innlit útlit. *hrollur* [/atriði]
[atriði]Bingó með Villa. [/atriði]
[atriði]Sirrý [/atriði]
[atriði]Lífsaugað [/atriði]
[atriði]Tvíhöfðafréttir [/atriði]
[/listi]

   (60 af 62)  
1/11/03 22:02

Muss S. Sein

Kynlíf er náttúrulega af því illa.

1/11/03 22:02

Skabbi skrumari

Úff, það yrðu alltof krassandi þættir fyrir mig... ekki að ég horfi á það, nema tvíhöfðafréttir sem maður getur glott yfir...

1/11/03 22:02

Hóras

Líttu bara á Undirheima hér á Baggalút. Virkasta svæðið um þessar mundir.

1/11/03 23:00

Nornin

Eða bara aðra þræði.. á endanum snýst flest allt um kynlíf eða annan "dónaskap"
Auðvitað selur kynlíf. Við mannskepnurnar erum ekki með fastann fengitíma og því er einhver að hugsa um það á hverri sekúndu.

1/11/03 23:00

albin

Það er harðbannað að halda að ég sé á móti kynlífi... þó maður velti... vöngum.

1/11/03 23:00

Galdrameistarinn

Ekkert að kynlífi. Bara að það sé á réttum forsendum.

1/11/03 23:00

Öfghar Herskársson

Ég lifi ofurhetju kynlífi. Vill einhver gera þátt?

1/11/03 23:00

albin

Kanski titillin hefði átt að vera kylífs selur

1/11/03 23:01

voff

Ég er nú ekki sammála því að það sé ekki hægt að bjarga Innlit/útlit með smá sexi ("Ohh, þetta er alveg brilliant útfærsla á innra rýminu, ohh, ahh, alveg stórkostlegt hugmyndaflug"). Sirrý gæti einnig bjargast ef hún væri í svoldið flegnari fötum og í staðinn fyrir að draga út vinning væri dregið út sturtu- eða heitapottsdvöl með Sirrý sjálfri (sem væri svo sýnt frá í næsta þætti). Já ég held svei mér þá að öllum þessum þáttum mætti bjarga nema þá helst Lífsauganu. Menn geta e.t.v. keypt það að einhver framliðinn tali í gegnum Þórhall miðil, en ég held að enginn muni kaupa það að framliðnir káfi í gegnum Þórhall. Og svo vil ég benda á þátt sem ekkert getur bjargað, hvorki kynlíf, talandi dýr, brandarar né nokkuð annað. Og það er Gísli Marteinn (hrollur niður eftir baki við tilhugsunina um Flissa á nærklæðunum að taka viðtal við fólk).

1/11/03 23:01

Muss S. Sein

Sirrý er líka svo pr0n queen leg...

1/11/03 23:01

Tigra

Ef kynlíf selur.. verðum við Hóras þá rík?

1/11/03 23:01

Tigra

Ef kynlíf selur.. verðum við Hóras þá rík?

1/11/03 23:01

Jóakim Aðalönd

Ekki jafn rík og ég, a.m.k.

2/11/03 06:01

Kynjólfur úr Keri

Snorri í Betel er svona kynlífsselur.

4/12/06 04:01

Gvendur Skrítni

Merkilegar skepnur, kynlífsselir

3/12/07 09:00

krossgata

Örugglega komnir af syndaselum.

albin:
  • Fæðing hér: 11/8/03 11:19
  • Síðast á ferli: 16/12/23 09:55
  • Innlegg: 3545
Fræðasvið:
Sjálfmenntaður í ScrewDriver... sem er eftirlætis svaladrykkurinn, en drekk þó ekki nærri nóg af honum. Ég hef víðtæka þekkingu á skotvopnum ætluðum til verka á lengra færi sem og í návígi.
Æviágrip:
Ég hef alla tíð verið þorpari, fól og fantur.