Ördagbókarfærsla
Ef það er of ótrúlegt til að vera satt, þá er það ekki satt..
Þetta er ágætis þumalputta regla.
Nú eru fréttir um að enn einusinni hafi saklausir* þegnar látið glepjast af gylliboðum um gull og græna skóga í gegnum internetið. Hvenær lærir fólk? Hvenær hefur sauðsvartur almúginn fengið eitthvað á silfurfati? Aldrei.
Og á því verður engin bragarbót í náinni frammtíð, ekki ef ég fæ einhverju um það ráðið.
*Hugsanlega vitlausir.
Ég læt hvítþvo peninga af minni skipulögðu glæpastarfsemi í Austur-Evópu. Það er auðveldast.
Ég fékk 18 milljónir evra inn á bankareikninginn minn á föstudaginn. Aumingja Ukulele Mtonga má ekki hafa þessa aura á sínu nafni.
Ég var að vinna eina milljón evra. Ekkert grín. Var að fá tölvupóst um þetta. Það eina sem ég þarf að gera til að fá greitt er að senda tölvupóst á einhvern kall í Deutsche Bank, Amsterdam (srvcscust@netscape.net).
Ég fékk 250.000.000 dollara í fyrra frá eiginkonu Joseph Kabila og þau voru eitthvað að tala um það að ég þyrfti að millifæra þá aftur í banka í Sviss á reikning í mínu nafni, sem ég og gerði. Þau sögðu að ég ætti að fá einhven pening fyrir þetta en það lætur eitthvað standa á sér. Enn fremur get ég allt í einu ekki millifært af reikningnum mínum í Sviss hingað heim aftur. Það hlýtur að vera einhver bilun í kerfinu hjá þeim.
Ég vann 50 kall á happaþrennu haustið '96. Síðan þá hef ég ekki verið mjög heppinn með peninga.
Já, ég hef nú fengið nokkur Nígeríu bréf.... Spurning um að svara þessu og græða smá péníng !!