Varla LaLaLa
Auglýsingar reyni ég að láta ekki hafa áhrif á mig. Vissulega erfit, ef ekki vonlaust mál.
Því hafa leiðinlegar auglýsingar mestu áhrifin á mann? Auglýsing tónlistarafsprengis Hildar Völu er hreinlega að drepa mig úr leiðindum, það er eitthað svo fokking boring við þetta "LaLaLa"
Tónlistina hef ég nú ekki heyrt að þessari hljómskífu, en ef þetta "LaLaLa" er brot af því besta er ekki von á góðu.
Núll stjörnur fyrir disk og auglýsingu, og mínus fimm stjörnur fyrir mannsefni.
Bráðskemmtileg og smellin auglýsing. Ég er ekkert abbó út í Jón sko...
Þetta andskotans "Allt er hægt ef þú lifir hægt..."
Hvurn sjálfan andskotann þýðir það!
Já, sú auglýsing er farin að fara í taugarnar Tina. Er ekki hægt að fá skjól fyrir helv... auglýsingafarganinu hér á Baggalút. Annars voru Winny´s borgarnir sem framleiddir voru á samnefndum stað við Laugaveginn, rétt neðan við Hlemm, þeir langbestu á markaðnum.
Æ þetta er svona týpísk „fyrirjól” plötuauglýsing þar sem listamaðurinn labbar í fjöru eða uppi á fjalli, helst með sólgleraugu og leðurhanska og mæmar við brot úr nokkrum lögum. Nánast alltaf ábreiðulög. Mér finnst þetta einstaklega hallærisleg auglýsingamennska.
Ég ætla að lifa á Tomma-borgurum næstu þrjú árin og mér hefur sjaldan liðið betur en einmitt með þá ákvörðun.
(Ég er sammála því að þessi ,,tónlist" er ekki upp á marga fiska...)