Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Skelfing þykja mér ógeðfelldir þessir nafnleysingjar allir á netinu.
Minnir mig einna helst á lyddurnar og lítilmennin sem stóðu á bak við Íslendingasögunar í denn. Og þá sér í lagi huglausu kellinguna sem skrifaði Eglu.
Þolað gat breikið og bítboxið
ballett og annað tað
en djöfulsins andskotans dítoxið
– ég dreg mín mörk við það.
Við ógnum heimsins enginn býður ærlegt svar
– enda hafa ílengst þar
einkanlega fávitar.