Þjóðbók
Snorri Sturluson
snorrmentor.oldnorsebloggers.no
Splæsti í æPadd fyrir Órækju. Ekki meira fokkings kálfskinn á þessum bæ takk fyrir.
Snorri Sturluson
Gat nú verið að Gissur myndi senda mér kort. Ég sem sendi honum ekkert í fyrra. Þetta veit ekki á gott.
 
Snorri Sturluson
Einhvern tímann hefði nú einhver fengið atgeir í kviðinn fyrir að segja það – en assgoti var þetta samt vel af sér vikið hjá norska krúttfiðlaranum.

Eftirpartí hjá mér í pottinum. Síðastur til að taka Nínu er fúlegg.
 
Snorri Sturluson
Djöfull nenni ég ekki þessu sífellda tuði og væli allstaðar og allt um kring.
Af hverju fara ekki þessir galandi blogghanar bara og vega hvern annan, eins og alminlegir menn, í stað þess að riðlast sínkt og heilagt á blásaklausum lyklaborðum og úrvinda músum dag- og næturlangt?

Fokkings rugl. Ég er farinn í pottinn.
 
Snorri Sturluson
Jæja, heimturnar skítsæmó þetta árið. Baðsloppur og bestipabbiíheimi-atgeir frá Órækju. Og svo fjórtán eintök af Heimskringlu og tvö af Eddu.

Það verður tilfinnanlega að fara að gefa út fleiri bækur á þessu skeri.
 
Snorri Sturluson
Glitnir hét salur,
hann var gulli studdur
og sjálfumgleði hið sama;
nú þar féhirðar
híma flestan dag
– tæta gögn og gráta.
 
Snorri Sturluson
Ég grét mig í svefn í nótt.

Ég saknaði Skjás eins svo skelfilega.
Sérstaklega auglýsinganna.
 
Snorri Sturluson
Helvítis vesen að það sé ekki hægt að vega menn lengur hér á þessu skeri. Það var alltaf fín leið til að losna við hina og þess blábjána, sem héldu að þeir væru eitthvað.
 
Snorri Sturluson
Voðalegt endemis vesen alltaf á þessari krónu. Ég sagði alltaf að það væru mistök að hætta með blessuð kúgildin.

Það held ég væri ólíkt fjörugra í kauphöllinni í dag, væru þau enn við lýði.
 
Snorri Sturluson
Er túmöts að segja að Sleipnir hafi haft tólf augu, átján eyru og sex tögl – eða á ég að láta átta fætur duga?
 
Snorri Sturluson
Skelfing þykja mér ógeðfelldir þessir nafnleysingjar allir á netinu.

Minnir mig einna helst á lyddurnar og lítilmennin sem stóðu á bak við Íslendingasögunar í denn. Og þá sér í lagi huglausu kellinguna sem skrifaði Eglu.
 
Snorri Sturluson
Þvílíkur ófögnuður. Ég er búinn að vera í allan morgun að smúla laugina.

Þetta er í síðasta skipti sem Órækja fær að halda partí.
 
Snorri Sturluson
Hólífokk, dr. Hannes í tómu tjóni, ræfilstuskan.

Eins gott að þeir fari ekki að krukka í mínu stöffi - þá er ég endanlega búinn að vera.

 
     1, 2  
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Á endastöð eg berst í bráð
því bið eg guð um hinstu líkn;
að síðustu af sinni náð
hann svali minni kynlífsfíkn.

Áfengið er ærlegs manns
eini sanni vinur.
Sáluhjálp og huggun hans
hvað svo sem á dynur.
Í því liggur fólgin fró
friðarathvarf, hugarró
og svo mætti lengi, lengi telja.
Leiðist mér því upp að þurfað selja.

Ljót ertu lóa
lúsa og flóa
bæli - og bannsett pest.
Ljót ertá litinn
lítil og skitin
fúl eru egg þín flest.

Ljót ertí lyndi
lymskunnar yndi
blautt í þér hjarta berst.
Ljót eru ljóð þín
leið eru hljóð þín
- en söngröddin sýnu verst.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA