... ykkur öllum!
Síðustu þrjú árin, sem ég hef verið hér í svíaríki, hef ég ekki haft mikla möguleika að nota mitt ástkæra móðurmál. Mín æðislega systir og minn frábæri bróðir, kynntu mig fyrir Baggalútíu snemma síðasta vor og var það þá eins of sending af himnum ofan. Það er að segja, ef maður trúir á svoleiðis.
Ég vildi bara segja takk. Þið gefið mér möguleika til þess að tjá mig á því máli sem stendur hjarta mínu næst. Sænskan er ljót og leiðinleg í samanburði við hina fögru hljóma íslenskunar.
Takk fyrir að vera til, og vera hér.
Það er líka gaman að hafa þig hér, systir góð.. enda þarftu á þessari æfingu að halda.. (reyndar ég líka)
Gaman er ef Gestapó er góður vettvangur til að viðhalda íslenskunni. Eigi mælum vjer þó með að þjer takið yður málfar sumra gesta hjer til fyrirmyndar í mæltu máli.