Athyglisbrestur er ekkert gamanmál
elsku vina, aldrei þig má aumur missa
- bíddu smá, þarf pínu að pissa
nostra við þig nakta, hetjan nálgast lénið
- hvernig standa króna og yenið?
unun mikil, fer nú frauka að fnæsa og góla
- manstu hver er mamma hans Óla?
ó mín kæra, (knús) þig vil við kátur masa
- hvað er þetta? kannski flasa?
Hmmm...bara eins og lýsing á gærkvöldinu hjá mér! Nema ég var í hlutverki kallsins...
atlot heit ég iðka þér í endaþarmi
- meðan fletti moggagarmi
þröngan, hlýjan, þinn ég elskan, þjappa anal
-ástin, skiptu á annan kanal
gott er að stekkja á stjörnunni og stynja, brunda
- hefuru frétt af honum Munda?
Er eitthvað hér að koma fram um samband Isaks og hlewa sem áður hefur verið hulið almenningnum? Tja, maður hlýtur að spyrja sig. Frábærar vísur.
Massað form. Mig langar prufa þetta einn daginn.
Kannski þú laumir að okkur reglunum á einhverjum vel völdum þræði á Kveðist á. Svona svo maður geti gert þetta rétt.
Ég þakka öllum kærlega (ekki síst hlebba fyrir viðbótina).
Jarmi: Þetta er formið afhending. Á Heimskringlu.net eru upplýsingar um það.
http://www.heimskringla.net/bragur/Afhending.php
Ég held að Jarme hafe vereð að meina að hann langaðe tel að pröfa að hafa samfarer.
Jæja, ég ætla að laumast hér og gleyma því svo, fyrst Skabbi var svo góður að vekja upp draug (þráð) sem benti síðan hingið - reyndar í biluðum hlekk, en ég komst hingað samt. [Afhendir Isaki heilsuskál]