— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Isak Dinesen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur.
Dagbók - 4/12/06
Leyndó trúfíflanna!

Athugið. Svakalegt leyndó framundan. Ekki fyrir viðkvæma.

Dagbók!

Einhverjir bölvaðir peningaplokkarar vestur í amríku eru búnir að fá Ófru Winfrey og sígarettukallinn Þorgrím Þráinsson og einhverja aðra nóbodís til að plata tugmilljónir manna til að gefa "bara" 4,95 dollars í ekki neitt.

Þetta "bara" getur auðveldlega orðið 10.000.000 * 4,95 $ = 49,5 milljónir dollars LÁGMARK!, fyrir eina skitna vefsíðu og eitt ruslvídjó og einhvern samning um ókeypis mánaðarskammt af frönskum og kokteilssósu frá Burger King fyrir Ófru og aðra viðlíka rugludalla.

Þetta plokk er svo allt hulið með einhverju bulli um eitthvert leyndarmál, sem mér hefur verið tjáð af fólki með heilann enn áfastan að sé nákvæmlega ekkert merkilegt. Fuss!

Adieu.

   (7 af 42)  
4/12/06 13:02

krumpa

Ha? Skil bara ekki baun í þessu riti og þetta hefur víst alveg fariðf ramhjá mér. En vont er ef satt reynist. Eða eitthvað.

4/12/06 13:02

Isak Dinesen

http://www.thesecret.tv/home.html

4/12/06 13:02

krumpa

Ahh...Takk fyrir!

4/12/06 13:02

Dula

Ég hélt að allir vissu að svar við spurningu um tilganginn væri 42.

4/12/06 13:02

Stelpið

Amen

Fyrirtaks gagnrýni um þetta fyrirbæri:
http://www.skeptic.com/eskeptic/07-03-07.html

4/12/06 13:02

Þarfagreinir

Þetta er samansafn eldgamals bulls. Alltaf leiðinlegt að sjá svona rugl ná vinsældum, en það sannar þar svosem bara enn og aftur að fólk er fífl.

Ég er hins vegar forvitnastur um að fá að vita hvernig Þorgrímur Þráinsson tengist þessu.

4/12/06 13:02

Isak Dinesen

http://www.worldclass.is/Xodus.aspx?id=351&MainCatID=16

4/12/06 13:02

krossgata

[Skreppur á bókasafnið og grefur gamlar rykugu "Hjálpaðu þér sjálfur", "Elskaðu sjálfan þig", "Að verða milljónamæringur á 24 klukkutímum", "How to become a success for dummies" - sjálfshjálparbækurnar]
Gert þetta, verið þarna (alveg frítt).

4/12/06 14:00

Kondensatorinn

Pungbindisfýluplebbar.

4/12/06 14:00

Jóakim Aðalönd

Þetta er nú meiri vitleysan!

4/12/06 14:02

Hakuchi

Afsakið meðan ég æli.

Isak Dinesen:
  • Fæðing hér: 15/3/05 17:21
  • Síðast á ferli: 9/6/14 14:10
  • Innlegg: 1593
Eðli:
(Það skal árétt að þetta er athvarf Isaks Dinesens hins íslenska.)

Heldur að hann viti að hann viti ekkert.

Lærisveinn Þorgríms Þráinssonar.

Uppáhalds tónlistarmenn: Sara Vohan og Dissy Gelle-Spy.
Fræðasvið:
Lesblinda og einkirningasótt.
Æviágrip:
Lifir eins og hann mun deyja - stífur.