Jæja, heimturnar skítsæmó þetta árið. Baðsloppur og bestipabbiíheimi-atgeir frá Órækju. Og svo fjórtán eintök af Heimskringlu og tvö af Eddu.
Það verður tilfinnanlega að fara að gefa út fleiri bækur á þessu skeri.
Snorri Sturluson
Aumt er Ísland
enginn sómi
glötuð virðing, vegsemd.
Heillum horfin
hímir svikin
þjóð í djúpum draumi.
Illt er umtal
eiturtungna
nöðrum netið ofið.
Aumt er Ísland,
eymdarbæli.
Þung er sorg á sinni.
Snorri Sturluson
Nú er ég kannski ekki sérfræðingur, en ef ég hefði gert framhaldsmynd um þrumudrenginn Þór, þá hefði hún tvímælalaust borið titilinn: „Mjöllnir snýr aftur“.
Snorri Sturluson
Splæsti í æPadd fyrir Órækju. Ekki meira fokkings kálfskinn á þessum bæ takk fyrir.
Snorri Sturluson
Gat nú verið að Gissur myndi senda mér kort. Ég sem sendi honum ekkert í fyrra. Þetta veit ekki á gott.
Snorri Sturluson
Einhvern tímann hefði nú einhver fengið atgeir í kviðinn fyrir að segja það – en assgoti var þetta samt vel af sér vikið hjá norska krúttfiðlaranum.
Eftirpartí hjá mér í pottinum. Síðastur til að taka Nínu er fúlegg.
Snorri Sturluson
Djöfull nenni ég ekki þessu sífellda tuði og væli allstaðar og allt um kring.
Af hverju fara ekki þessir galandi blogghanar bara og vega hvern annan, eins og alminlegir menn, í stað þess að riðlast sínkt og heilagt á blásaklausum lyklaborðum og úrvinda músum dag- og næturlangt?
Fokkings rugl. Ég er farinn í pottinn.
Snorri Sturluson
Glitnir hét salur,
hann var gulli studdur
og sjálfumgleði hið sama;
nú þar féhirðar
híma flestan dag
– tæta gögn og gráta.
Snorri Sturluson
Ég grét mig í svefn í nótt.
Ég saknaði Skjás eins svo skelfilega.
Sérstaklega auglýsinganna.
Snorri Sturluson
Helvítis vesen að það sé ekki hægt að vega menn lengur hér á þessu skeri. Það var alltaf fín leið til að losna við hina og þess blábjána, sem héldu að þeir væru eitthvað.
Snorri Sturluson
Voðalegt endemis vesen alltaf á þessari krónu. Ég sagði alltaf að það væru mistök að hætta með blessuð kúgildin.
Það held ég væri ólíkt fjörugra í kauphöllinni í dag, væru þau enn við lýði.
Snorri Sturluson
Er túmöts að segja að Sleipnir hafi haft tólf augu, átján eyru og sex tögl – eða á ég að láta átta fætur duga?
Snorri Sturluson
Skelfing þykja mér ógeðfelldir þessir nafnleysingjar allir á netinu.
Minnir mig einna helst á lyddurnar og lítilmennin sem stóðu á bak við Íslendingasögunar í denn. Og þá sér í lagi huglausu kellinguna sem skrifaði Eglu.