Þá er einhver heilabilaði haftyrðillinn búinn að kjafta í þann helming þjóðarinnar sem bíður þess enn að sjá lokakafla Pressu, án undanbragða og málalenginga, hver morðinginn er. Og það í flenniskúbbi á prentsvertum óumbeðnum afturhluta Fréttablaðsins.
Sætt.
Það er mér sönn ánægja að tilkynna viðkomandi – og eyðileggja þar með prýðilega skemmtun við sjálfstæðar rannsóknir snápsins kjaftagleiða – að það var ég sem kúkaði í póstkassann hans.