— GESTAPÓ —
Félagsrit:
Finngálkn
Fastagestur og  skriffinnur.
Dagbók - 2/11/05
Merkilegt með þennan einkapóst!

Eitt og annað hef ég ritað um skammgefna skíthæla en þó aðallega þau andlegu hræ sem hér hanga. En nú hefur verið stungið upp í mig - og það ekki með orðum!

Skildi viðkomandi lesa eftirfarandi þá vinsamlegast taki hann það til sín...

Máli ekki lokið...

Framhald síðar...

P.s. geturðu ímyndað þér hvað ég hefði getað skrifað hérna???

   (21 af 70)  
2/11/05 13:02

Hakuchi

Hverjum í ósköpunum gæti verið uppsigað við þig Finngálkn mitt?

Þú færð þó einhvern einkapóst.

2/11/05 13:02

Dula

Hva færð þú líka þannig

2/11/05 13:02

Finngálkn

Já það rignir yfir mann aðdáendabréfunum í formi morðhótana!

2/11/05 13:02

Hakuchi

Ég er saklaus.

En vont er ef satt er. Þú ættir að tala við Enter. Svo getið þið farið með kúbein og tvíhleypu og tekið einn Charlie Bronson á sökudólginn. Ef farið er út í slíkt óska ég eftir að fá að rúlla með.

2/11/05 13:02

Finngálkn

Þú ert vinur í raun Hakuchi!

2/11/05 13:02

albin

Ég hélt að engin mætti fara um með morðhótanir nema ég. Greinilega einhver misskilningur.

2/11/05 13:02

Finngálkn

Hei varstu að bóna á þér kónginn albin?

2/11/05 13:02

albin

Hvað.... sést það?

2/11/05 13:02

Barbapabbi

það þarf nú engan spámann til að grísa svona

2/11/05 13:02

krumpa

Skil ekki hvernig nokkur getur hugsað sér að segja ljótt við þig minn kæri, hvers manns hugljúfi eins og þú nú ert.

2/11/05 13:02

Nermal

Eitt má fólk aldrei gera hérna. Það er að taka hlutina of alvarlega. Þetta samfélag gengur útá að gantast og hafa gaman af.

2/11/05 13:02

Tina St.Sebastian

Aldrei fæ ég einkapóst, nema til að reka á eftir mér...

2/11/05 13:02

Hvæsi

Hver getur verið vondur við litla krúttu búttu finngálknið ?
Þetta krútt á ekki vondann einkapóst skilið.
Ég vill vera með í limlestingunum.

2/11/05 13:02

B. Ewing

Ég spáði ekkert um þetta Barbapabbi. Hef heldur ekki sent Finngálkninu neina pósta. [Hoppar á öðrum fæti og fer í snúsnú]

2/11/05 13:02

Vímus

Ef farið verður í skemmtiferð þá er Hakuchi stakk upp á, þætti mér vænt um að fá að fljóta með. Mig langar mikið að vita hvort þessi óþokki sem hótar jafn vinamörgum ljúflingi og þér, sé svona hugrakkur eða bara svona ótrúlega heimskur.

2/11/05 13:02

Hvæsi

Hvað ætlar þú að gera Vímus ?
Anda framaní hann ?

2/11/05 13:02

Finngálkn

Þeigi þú hvæsi eða þú verður úrbeinaður kokksfjandi!

2/11/05 13:02

Von Strandir

[Mætir á svæðið] Var einhver að kalla á Charles?

2/11/05 13:02

Vladimir Fuckov

Var einhver að tala um að bæta fleiri nöfnum á listann ógurlega yfir óvini ríkisins ? [Ljómar upp]

2/11/05 13:02

Þarfagreinir

Charles Bronson sem Munnharpa mættur. Uss ... ekki myndi ég vilja vera í sporum þess sem sendi Gálkninu umræddan póst.

2/11/05 14:00

blóðugt

Ég get ekki ímyndað mér hvað það getur verið sem móðgar Finngálkn.

2/11/05 14:00

Jarmi

Ertu byrjaður að skæla aftur litli kútur?! Mikið voðalega hvað þú getur emjað yfir litlu sem engu. Reyndu að herða þig upp tuskan þín, það er ekki sjón að sjá þig svona!

2/11/05 14:00

kolfinnur Kvaran

Senn koma jólin...

2/11/05 14:00

Offari

Ég er saklaus í þetta skiptið.

2/11/05 14:00

Vestfirðingur

Jæja, þá erFinngálkn búinn að glata þessu litla kúli sem hann hafði. Kominn á hnén og grátbiður Gestapóa um samúð vegna einkapósts frá einhverjum geðsjúklingi. Nú eru bara þrír töffarar eftir hérna inni - Vímus, Jarmi og ....

2/11/05 14:00

feministi

...Feministi

2/11/05 14:01

Finngálkn

Enda er þetta ekkert væl - heldur bein hótun!

2/11/05 14:01

Carrie

Hmm ég fékk einu sinni einkapóst.
En hann innihélt ástarjátningu.... eða bíddu nú við... ég held það annars.
[Rýkur af stað að lesa einkapóstinn]

2/11/05 14:01

Dula

Ég fæ nú eintóm aðdáendabréf [montar sig]

2/11/05 14:01

Offari

Carrie afhverju svaraðir þú ekkipóstinum?
Dula mín ég mun alltaf senda þér póst.

2/11/05 14:01

Dula

[hlær og slær sér á lær] Já takk fyrir að stútfylla einkapósthólfið mitt af einhverjum leirburði, ég vil hafa pláss fyrir alvöru aðdáendurna líka, ekki bara stalkerana.

2/11/05 14:01

Vladimir Fuckov

Þess ber að geta að auk leirburðar, hótana, ástarbrjefa o.s.frv. er líka hægt að senda ólesanlegan laumupúkapóst þar sem einungis er unnt að lesa efnislínu skeytisins [Ljómar upp].

2/11/05 14:01

Vímus

Hvað með helvítis geitina ? Hún skeit í hólfið mitt.

2/11/05 14:01

Vímus

Ég hélt fyrst að þetta væri hass og tróð vel í pípustertinn
Ja fyrr má nú vera ósvífnin. Hins vegar hef ég þó alla vega reykt alvöru skít.

2/11/05 15:00

risi

Einkaskilaboð til Finngálkns, I luuuve youuu man.

2/11/05 15:01

blóðugt

Geitin skeit líka í hólfið mitt.

2/11/05 15:02

Upprifinn

Hvað hefðirður getað skrifað?

2/11/05 15:02

Finngálkn

Nú birt helvítis einkapóstinn!

2/11/05 16:00

Billi bilaði

Ertað púlla einhvers konar Offara-tíser?
Segja frá skemmtilegum einkapóstum, en haldonum svo bara fyrir þig!
(Og þetta kallar maður vini sína.)
[Rekur upp hláturroku.]

2/11/05 17:01

Upprifinn

Ég skora þá bara á þig að birta hann!

2/11/05 17:01

Hakuchi

Birtu hann endilega. Þú getur haft hann nafnlausann til að hlífa fíflinu.

5/12/06 04:01

Billi bilaði

Og ekki birtist hann.

Finngálkn:
  • Fæðing hér: 10/8/04 21:26
  • Síðast á ferli: 17/8/16 00:18
  • Innlegg: 277