Það verður sjaldan eða aldrei úttalað um það hversu yndisleg börn eru... gubb... æl... slurp... öghhh...
Helvítis krakkaógeð... Ég var látinn passa börn systkyna minna frá því að ég var 8 ára og langt fram eftir - þessa bévítans umskiptinga sem ældu og skitu á mig. Ég hef nú reyndar hefnt mín á þeim flestum og eitthvað er verið að væla yfir þessum tilraunum sem ég gerði á þeim eins og litla frænda mínum sem ég brókaði og hélt þannig á honum uppá fjörðu hæð... Hann hætti allavega að rífa kjaft eftir það litli bastarðurinn. Bróðir hans tók ég þvoði um hárið - ofan í klósettinu! - Litla afstyrmið lyktaði hvað best eftir það bað!
Ekki misskilja mig ég hef gaman af börnum... En þá einna helst þegar hægt er að nýta þau í þágu vísindanna.
En það sem að ég skil ekki er: hver vill eiðileggja líf sitt og annara með því að framleiða enn eitt kvikindið sem mun halda áfram að eiðileggja heiminn? Það er fyrir löngu komið nóg af krökkum!!! - Hvenær ætlar fólk að ná því? - Það sem mannkynið vantar er pláss og aukinn aðgangur af þeim litlu auðlindum sem eftir eru - EKKI FLEIRA FÓLK!!! - Ég held ég fari að hita vatn fyrir krakkasúpuna sem ég ætla að bjóða systkynum mínum uppá - hráefnið er tilfallandi!
Þessi orðsending var í boði Voluntary Human Extinction Movement!
Þú finnur það á bragðinu Huxi hvort um er að ræða ófrjósemi eða ekki - má bjóða þér smakk?
Nú ætlaði ég aldeilis að rakka þig niður... en get það því miður ekki, því þú hefur alveg rétt fyrir þér. Óþverrinn þinn.
Já ástarpungurinn minn, eftir mörg mistök á þessu sviði þá skil ég alveg hvað þú meinar. Ástarkveðja Dula.
Finngálkn... þú hefur eflaust verið yndælt barn... Skál og takk fyrir að ætla ekki að fjölga þér...
tekur einn staf í burtu, bætir einum við og endurraðar
Barnagæla - Glasabarn. Enn ein tilviljun?
Þetta eru ekkert nema tilviljanir. Hinsvegar er einn kostur þess að hlaða niður börnum - það tryggir væntanlega að einhver eldi oní mann á elliheimilinu. Oseisei. [Pantar pláss á Hrafnistu]
Það eru til yndisleg börn, og svo eru til ömurlega frek og leiðinleg sígrenjandi ofurfrek krakkaskrímsli. Fátt er jafn pyrrandi og organdi ormur að farast úr frekju í miðri stórverslun. Ég mæli með að börn séu almennt ekki höfð með í verslunarferðir nema brýna nauðsyn beri til. Þá skulu þau höfð í taumi!!
Ég ætla, þegar ég verð eldri, að kaupa mér byssu. Hana ætla ég að nota ef ég sé fram á það að þurfa að enda síðustu árin á skítaelliheimili eins og t.d. Hrafnistu. Fyrr skýt ég mig í hausinn en að enda ævina á þann sorglega hátt!
En hvað ef Hrafnista verður orðið "Frír bjór og annað áfengi og hömlulaust kynlíf eftir getu og vilja hvers og eins" staður?
Loksins, eftir langa bið kom almennilegt félagsrit sem er þess vert að maður viðurkenna að hafa lesið það.
Þetta með kynlíf gamlingja á elliheimilum er ansi algengt hér í .dk. Og einstaka sinnum hefur það komið fyrir að það hafa orðið nokkur slys á skömmum tíma sem má rekja beint til hópkynlífs gamlingja á elliheimilum, þá ratar það í blöðin. Fólk veit ekkert hvernig á að taka á þessu. Flestir kíma bara út í annað, aðrir eru stórhneykslaðir.
Ef það er einhverntíma tími til að leika sér í hömlulausu og skuldbindingalausu kynlífi, er það ekki einmitt í ellinni? Fyrir nú utan hvað þetta er góð dægrastytting... einn dráttur getur alveg tekið allan daginn... [Kímir]
Ég myndi athuga það betur ef þetta með frían bjór og annað áfengi væri orðið að veruleika. Hitt varðar mig ekkert um og er satt að segja viðurstyggilegt.
Er pistillinn minn farinn að snúast um samfarir eldri borgara??? - Siðlausu skrattar!
Gálkni minn, þú getur allavega huggað þig við það að það er ólíklegt að það verði til börn úr því.