Djöfulsins ógeð og drasl!
Ég hefði viljað vera með nýfengnu eldvörpuna mína í dag sem ég fékk á útsölu í Tjetsjeníu í fyrr í mánuðinum! - Andskotinn hafi það - fyrr má nú rota en dauðrota og allt það... Sjá þetta helvítis viðbjóðslega tilgerðarlega "ég er svo spes" lið í miðborginni í tengslum við mistökin og tónlistarskúlptúrinn Airwaves! - Ojbara og ullabjakk og svei og vei öllum helvítis týpunum innan sviga og gæsalappa sem ekki er þverfótað fyrir útum allt.
Langstærstur hluti bandanna sem spila á meintri hátíð eru bara ekkert merkilegri en aftansaungurinn úr iðrum mér á morgnanna - helvítis prump sem veldur óþægindum og vondri lykt og hverfur með morgungolunni.
Fólkið og tónlistin í kringum þennan sirkus er orðið svo yfirgengilega tilgerðarlegt með hártoppana sína og "ég er svo spes hrokasvipinn" og íklætt tusskum og gardínum og mygluðum leðurjökkum - að mann langar til að míga á þetta og það ætti maður vissulega að gera. Ætli það yrði ekki túlkað sem gjörningur... það helvítis orð sem minnir á klósettferð...
Ætli Baggalútsbandið hafi ekki verið einu talentarnir alla helgina - eina bandið sem er spes!!!
Nenni ekki að röfla meira en þetta er allt of spes fyrir minn smekk
Einu staðirnir sem var farandi á voru Dillon(sem lokar snemma) og Celtic Cross(sem er of dýr fyrir minn smekk).
Svo ég hékk heima þessa helgi. Fyrir utan smá bíóferð og tölvu- og nördastússerí þá las ég bara og svaf.
Ég dreymdi að Finngálkn (eða bróðir hans, veit ekki hvort hann á bróðir) myndi skrifa eitthvað frábært félagsrit, minnir að það hafi verið eitthvert ljóð... djöfull að muna það ekki, þá hefði ég getað stolið því... hehe...
Það eina sem ég hef áhuga á að vita er hvort Harrison Ford hafi fengið að njóta þess að hlýða á köntrísveit Baggalúts.
Annars tek ég undir með Finngálkni. Orðheppinn er hann sem fyrr.
Feginn er jeg að þurfa að vinna og puða í stað þess að sleykja rassana í hundraðogeinum. Fussum svei!
Í aðalatriðum sammála - hef samt aldrei nennt að kynna mér þetta garg til hlítar
Þetta fjósarokk hans enters var nú baulað niður á árshátíð SUF. Sei sei já. Gott væri nú að fá ferskan pistil frá Úlfamanninum. Segji það nú bara.
Maðurinn minn var einmitt að spila um helgina. Ég eldaði handa honum ýsu um kvöldið og hann fór að grenja. " Á maður að éta ýsu eins og einhver almúgamaður" vældi hann og tárin eyðilögðu allt meiköppið sem hann hafði verið tvo tíma að klessa á sig. (Til að verða meira spes) "Gastu ekki eldað eitthvað óvenjulegt og grúví sem hæfir betur mínum flókna karakter??"
Djöfull sem hann getur verið þreytandi.....
Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að tónlist hljómar miklu betur á upptöku þar sem ég get þá hlustað á hana í friði og ró í minni eigin stofu. Ef ég vil láta annað fólk trampa á mér og svitna á mig á meðan skvarg- og surgblönduð útgáfa af tónlist bylur í eyrunum á mér þannig að ég næ henni ekki út aftur í fleiri vikur ætla ég a.m.k ekki að þurfa að borga fyrir það líka. Það er samt gaman að sjá einhverja spila sem maður hefur miklar mætur á.
Ef þig er farið að dreyma mig skabbi þá hlýt ég að vera "spes" !
Annars var ég búinn að búa mig undir orðastyrjöld... hálf svekkjandi eitthvað!
Skrifaðu þá eitthvað krassandi þarna Finngálks fífl. Ég er alveg sammála þessu öllu og mig langar salla helvítis spes liðið niður.