Ég er orðinn langþreyttur á helvítis þvælunni í henni tengdamóður minni. Hér hefur hún opnað á sér þverrifuna og það ekki í fyrsta skipti, í því skyni að reyna að græða á henni Britney minni.
Ég get vottað að hvorki ég né Britney gerðum annað en að kela og knúsast fyrr en við vorum komin langt á þrítugsaldur.
Afrýðusemin í tengdaforeldrum mínum er gjörsamlega að gera útaf við mig og ekki hjálpar til að tengdapabbi hafði nýverið fjárráðin af elskunni minni.
Ég skal sko segja þér það Lynne mín að það er ekki séns að ég mæti í jólaboðið þitt í Desember!
P.S. Kalkúnninn þinn er ógeðslegur!
Er hún tengdamóðir þín ekki að upplýsa hvað hún er ómögulegur uppalandi með þessum sögum? Hefurðu bent henni á það Kolfinnur? Hún fær örugglega ógeðslegan kalkúninn í hausinn.
Tengdamömmur eru eins og rasskýli... maður er alltaf dauðfeginn að losna við þær.