Opnað verður á aðfangadag, glænýtt fjárhús með öllum helstu nútímaþægindum. Húsið er staðsett á góðum og heimilislegum stað, að Loðmundarlæk II. Fjárhúsið tekur 5 börn í jötu. Góð aðstaða er fyrir barnshafandi beljur og tíkur en einnig hina almennu barnsmóður. Gamalkunnir vitringar úr röðum Framsóknarmanna verða á staðnum og fremstan í flokki ber að nefna okkar ástkæra landbúnaðarráðherra, Guðna Ágústsson.
Nóttin mun kosta um 12 böggur og aðstoð allsgáðrar ljósmóður auka 5 böggur.
Við hlökkum til að sjá nýja frelsara og tökum vel á móti ykkur.
kveðja,
Kvaran & Co.
P.S. Móður nýfæddra tvíbura verður færður einn kassi af Ákavíti í boði hússins, ásamt frýju húsaskjóli fram að 3. degi jóla.
"P.S. Móður nýfæddra tvíbura verður færður einn kassi af Ákavíti í boði hússins."
Ekki amarlegt nokk... hvað mun nóttin kosta?
Aah... takk fyrir ábendinguna. Móður tvíbura mun að sjálfsögðu fá að liggja í sínu fleti sér að kostnaðar lausu fram að 3. degi jóla.