Þessar bækur sem að hægt er að herma upp á Jamie Páls eru alger hryllingur. Ég veit að hér eru miklir bókmennta- og ljóðaáhugamenn en elsku Heimir var þetta nauðsynlegt? Ekki nóg með að innihaldið í þessum bókum sé tugir blaðsíðna þar sem hann kemst á einhvern óskiljanlegan hátt undan því að fjalla um það sem máli skiptir, þá eru þessar bækur líka einstaklega óhentugar til að sofa á og í rauninni ófært meðalmanninum. Ef svo brigði til hinsvegar að maður dottaði þá vaknar maður upp með meiri hausverk en maður sofnaði í.
Ég biðla hér með til menntamálaráðherra, takið þessar déskotans bækur af námskrá, ég veit að nauðsynlegt er að geta gert skil á helstu skáldum og bókmenntastefnum þjóðarinnar, en er ekki hægt að búa til skemmtilegri og betri rit en þetta.
Pylsan í rúsínuendanum er síðan myndin af mínum heittelskaða aftan á hverri bók... hunkalicious
Ég man ekki betur en Heimir hafi verið helv. skemmtilegur náungi - þó bækurnar hans séu það kanski ekki.