— GESTAPÓ —
Fræ
Fastagestur.
Dagbók - 2/12/07
Topp tíu listi. Átta

Þetta er topp tíu listi.

Topp tíu listi yfir ástæður þess að barna****.is og h***.is eru til.

Tíu. Bókmentaþjóðin er orðin leið á djúpum pælingum, réttritun og skrautmælgi.

Níu. Heimskar beljur verða að fá einhverja netlega útrás líka.

Átta. Almáttugum Enter fannst það ógeðslega fyndið.

Sjö. Einhverstaðar verða vondir að vera.

Sex. Það eru ekki allir sem kunna að stafa löng og flókin orð einsog B-a-g-g-a-l-ú-t-u-r-.-i-s.

Fimm. Sumir vilja bara ekki láta birta mynd af sér.

Fjögur. Það er hálf þjóðin á prozak með hálfvitaglott og veit ekki betur.

Þrjú. Þetta eru bara svo upplýsandi síður, eða þannig.

Tvö. Þessi vefsvæði fá bara svo góða kynningu á okkar vegum.

Eitt. Við viljum bara ekki fá þetta lið hingað.

   (14 af 21)  
2/12/07 06:00

Regína

Hehe, 5ta atriðið er alveg satt.

2/12/07 06:00

krossgata

Ég er að spá í ilð átta.

2/12/07 06:00

Tina St.Sebastian

"Bókmenntir" ritast með tveimur R-um.

2/12/07 06:01

B. Ewing

Skrifast það þá "Bókmentirr" ? [Glottir eins og fífl]

Nr. eitt er auðvitað aðalatriðið.

2/12/07 06:01

Texi Everto

[Talar frönsku og skoðar lappirnar á Fræ]

Fræ:
  • Fæðing hér: 26/4/06 12:17
  • Síðast á ferli: 1/3/13 20:56
  • Innlegg: 303