Þetta er topp tíu listi.
Topp tíu listi yfir jólagjöfina í ár.
Tíu. Blút-dæla, heldur blútnum köldum og ferskum í allt að þrjátíu daga.
Níu. Tímavél, algerlega skotheld gjöf, nema fyrir þá sem eiga hana fyrir.
Átta. Kóbalthúðaður kjarnorkukafbátur, flott fyrir næsta sumar, fellihýsi hvað?
Sjö. Allar breiðskífur köntrísveitarinnar Baggalúts, þ.e.a.s ef fólk á þær ekki fyrir.
Sex. Blútur, alltaf gott að eiga nóg að blút á dæluna góðu.
Fimm. Nýliði, flott að hafa þannig í skítaverkin.
Fjögur. Allar breiðskífur stormsveitarinnar Kóbalts.
Þrjú. Aukasjálf, ef viðkomandi átt ekki nóg af þeim fyrir.
Tvö. Veðurvél, þá viðrar pottþétt vel til flugeldaskota í gamlárspartíinu.
Eitt. Ritsafnið Ýsfirsk fyndni, í sérstakri leður innbundinni útgáfu.
Post scriptum, pissu stopp. Fyrstu tíu sem leggja orð í belg verða með í næsta topp tíu.
Velkomið fræ, ég hef ekki séð þig áður. Ertu nýkomið?
Munt þú vaxa og blómstra í vor?
Ágætis frammistaða hjá nýliða. Þó ég sé ekki græjusjúkur þá líst mér best á 2 og 9 og svo auðvitað 1.
Númer ellefu: Lopasokkar (hannaðir af Lopa?)... það verða allir að fá einhverja nýja flík um jólin... annars bara: Salút...
Sá sem ekki á allar breiðskífur köntrísveitarinnar nú þegar á ekki skilið að eignast þær!
Á ég þá semsagt ekki að fá mér þær sem mig vantar?
Er þetta annars ekki listi yfir það sem hægt er að gefa? Af hverju tala allir um hvað þeir vilja fá?
[ Ákveður að gefa engum númer 3 og 5.]
Fræið er skemmtilegt aukasjálf einhvers skemmtilegs Gestapóa giska ég á. Kannski Glúmur?
Mér nægir númer sex. Enda má með nægum bjór vel ímynda sér að maður hafi allt hitt líka.
-
Ykkar tíu efstu vegna vona é að næsti topp tíu listi verði ekki ,,Topp tíu yfir leiðinlegustu póana" {Glottir einsog fífl}.
Annars bara já já, fínt.
Þetta orð í belg verður í lista formi.
1. Tigra, já þú verður með.
2. Vladimir, þeir verða bara með aftur.
3. Isak, já satt er það.
4. Krossgata, gangi þér vel með skóna.
5.Jarmi, já bíddu bara aðeins lengur.
6. Billi, takk fyrir. [Setur plötu á fóninn.]
7.Salka, takk,nei enda er ég obbulítið Fræ, nei ég fæddist 26/4/06. Sjáum til.
8.Grágrímur, ég er ekki nýtt, ég fór í gegnum innflytendahliðið og fékk stimpil og er undir sérstakri vernd Tigru, svo skúra þú bara þinn eiginn skít, eða fáðu sannarlega nýliða til þess.
9.Regína, takk fyrir að finnast ég skemmtilegt, en ég er samt ekki aukasjálf neins nema sjálfsmíns. [Ruglas alveg og ákveður að gera rannsóknir á næturóþoli.]
Þið öll hin takk fyrir og fylgist með.