— GESTAPÓ —
Fræ
Fastagestur.
Dagbók - 2/11/06
Topp tíu listi. Fjögur.

Þetta er topp tíu listi.

Þetta er topp tíu listi yfir jólagjafir til gestapóa, fyrsir komu fyrstir fá.

Tíu. Golíat fær annað tækifæri með Davíð.

Níu. Gísli, Eiríkur og Helgi fá botn í keraldið svo það hætti að leka.

Átta. Salka fær sérstaka hátíðar útgáfu af Sölku Völku, áritaða af höfundi.

Sjö. Grágrímur fær nýja grímu sem skiptir litum, er ekki bara grá.

Sex. Billi Bilaði fær verkfæra- og viðgerðarsett með áletruðu fangamarki: B.B.

Fimm. Jarmi fær þrekþjálfa ásamt gjafabréfi uppá 100 einkatíma hjá Venna Páver.

Fjögur. Krossgata fær umferðarjós með fjarstýringu.

Þrjú. Isak Dinesen fær Karen Blixen safnið í Danmörku einsog það leggur sig, hús og muni.

Tvö. Vladimir Fuckov fær kóbalthúðaðan kjarnorkukafbát de Lux útgáfuna.

Eitt. Tigra fær sælkeramareneraða Færeyinga og blútdælu ásamt lífstíðar áfyllingu af blút.

Njótið öll vel, þið sem ekkert fenguð, kannski bara næsti listi?

Fylgist með.........

   (18 af 21)  
2/11/06 12:00

Játvarður

Mér þætti vænt um hlutdeild í næsta lista.

2/11/06 12:00

Andþór

Fræ fær mikið magn af áburði. Lífrænum að sjálfsögðu. [Glottir]. Skál!

2/11/06 12:00

Regína

[ Fylgist með.]

2/11/06 12:00

Offari

Komast fýlupúkar á topp tíu listan?

2/11/06 12:00

Tigra

Haha brill!
Nú get ég lifað hamingjusöm til æviloka!
[Fær ryk í augað]

2/11/06 12:00

Hóras

Ætli það fari ekki eftir umfjöllunarefni listans?

2/11/06 12:00

Dula

Fæ ég eitthvað[ spennist upp.]

2/11/06 12:00

krossgata

[Leikur sér með umferðaljósafjarstýringuna og setur grænt á allar áttir]

Snilld. Takk!!

2/11/06 12:00

Vladimir Fuckov

[Ljómar upp og hefur mikinn kafbátahernað gegn óvinum baggalútíska heimsveldisins]

2/11/06 12:00

Gísli Eiríkur og Helgi

Ég er ekki með neinn andskotans lekanda

2/11/06 12:00

Jarmi

Það var þá gjöf. Ábyggilega fallega hugsað en þetta er svipað og að gefa Bill Gates peninga.

Takk samt fyrir að reyna.

2/11/06 12:01

Sundlaugur Vatne

Mér líka þessir listar þínir, Fræ.
Ég vil og nota tækifærið og þakka fyrir að sjá verk mín í fyrsta sæti á lista þínum yfir hentugar jólagjafir. Sala á Ýsfirzkri fyndni hefur stóraukist í kjölfarið.

2/11/06 12:01

Billi bilaði

<Gerir við alla þá sem ekki komust á listann>

2/11/06 12:01

B. Ewing

[<Prófar viðgerðina frá Billa>] Hefðir þú ekki þurft saumnálasett ?

2/11/06 12:01

Jóakim Aðalönd

Þú ert nú meiri listamaðurinn Fræ...

Fá skapvondar, gamlar endur ekkert? Reyndar á ég talsvert fyrir.

2/11/06 12:01

Huxi

Þú ert nú frekar steiktur.. en fínn samt.

2/11/06 13:00

Rattati

Fæ ég bein?

2/11/06 17:00

Finngálkn

BOOORING!!!

Fræ:
  • Fæðing hér: 26/4/06 12:17
  • Síðast á ferli: 1/3/13 20:56
  • Innlegg: 303