— GESTAPÓ —
Kífinn
Heiðursgestur.
Dagbók - 1/11/07
Austurvöllur

Margir hópar hafa mótmælt og ekki allir sama hlutnum

Á morgun kemur hórkarl til með að mótmæla og leyfist að tala um sig í þriðju persónu vegna þess að hann er stúdent (þó ekki með prík, en hver veit á morgun?)
Á morgun mótmælir hórkarl og hvetur alla til þess sama sem sjá sér það fært. Byggjum samfélag sem er jafn fallegt og Lúturinn. Álfar í kóbalti eru ekki bara til sem samsvarandi tilstæður silfurs heldur má hver sem með vilja sínum vill kalla eftir betra samfélagi. Sýnum samstöðu og samhug: Kær þið eruð öll og hafið nokkuð til ykkar máls að færa.

   (22 af 25)  
1/11/07 22:00

Tina St.Sebastian

Viva La Brigada Negra Cacophonica!

1/11/07 22:00

hvurslags

Mér finnst meira en sjálfsagt að þeir sem munu t.d. skila inn auðu í næstu kosingum, eins og ég mun líklega gera, fái að sýna hversu margir þeir eru. Wo men dan shi tam'n shou de women de dou bu dou, wo dou hen dou!

1/11/07 22:00

Günther Zimmermann

Á Austurvelli'er gaman,
þar allir koma saman,
en ekkert Haarði heyrir
og hunzar okkur öll!

Muna svo www.kjosa.is.

1/11/07 22:00

Kífinn

Þegar Hilmar heyrir hvorki það sem hann né ráðgjafar segja
er tími hann taki sinn poki, tími til að þegja
Og þegar í stjórnmál mætir ný, betrumbætt Freyja
Er okkar tími til að þegja.

friðsamt, háttvirt, siðsamt

1/11/07 22:00

Skreppur seiðkarl

Álfar eða ál-far. Eða jafnvel álf-ar? Þó held ég að aldrei hafi verið til svo smáir álfar nema rykið þeirra sé jafnvel eitthvað spes.

Hnakkaskjóta svo Hordí og afhenda Davíð og málið er kvitt - og geðveikt fyndið í senn.

1/11/07 22:00

Lopi

Ég mæti! Ekki spruning. Ég verð sá sem er í lopapeysunni.

1/11/07 22:01

Nermal

Ég mætti síðast. Geir er bara gunga og drusla að þora ekki að reka þessa lúða úr seðlabankanum. Kallhelvítið er hrætt við reiði Davíðs. Davíð á bara að hætta og dratthalast í sumarbústaðinn sinn og fara snúa sér að ritstörfum. Þar gerir hann minni skaða.

1/11/07 22:02

Sundlaugur Vatne

Þið eruð nú ljótu melirnir að láta raunheimapólitíkina leka inn á sjáft Gestapó. Skammist ykkar... og sérstaklega þú, Hórkarl.

2/11/07 01:01

Skreppur seiðkarl

Vertekkimeþþetta Vatne!

Kífinn:
  • Fæðing hér: 25/10/04 10:30
  • Síðast á ferli: 14/10/14 01:14
  • Innlegg: 1425
Eðli:
Augun blá og hárið hátt
hálsinn ofar spölum.
Nefið mikið, mittið smátt
miltað veldur kvölum.
Fræðasvið:
Af hverju litir byrja ekki á sérhljóða? Doktorsrotgerð og rannsóknarvinna styrkt af Hörpu.
Æviágrip:
Borinn bur barst bóli bjarna
bagalegur, búlduleitur.
Burtu býður bægslum barna
bjartur brýtur beisnar breytur.