Sá sem deyr af völdum of stórs skammts, deyr að sjálfsögðu af ofneyslu efnis, sem engan veginn getur drepið hann sé það utan líkama hans., Það er neyslan sem drepur hann, hvort sem ykkur líkar betur eða verr. Segjum að efnunum hafi verið þröngvað í þann látna þá eru auðvitað þeir sem það gerðu ábyrgir fyrir dauða hans.
Ég þekkti eitt sinn mann sem var svo fanatískur að hann neitaði að ganga fram hjá áfengisverslun í of mikilli nálægð. Allur er varinn góður sagði hann. Trúið mér. Allar þær flöskur sem þar standa í mestu rólegheitum koma aldrei til með að ráðast á ykkur og slasa eða deyða.
Ég hef aldrei heyrt um flóðbylgjur áfengis sem hafa orðið fólki að bana.
Mig dreymdi eitt sinn að snjóhvít föl af kókaeini lægi yfir jörðinni. Þessi draumur minn mun aldrei rætast. Því síður mun þessu efni kyngja niður í það miklu magni að neyðarástand hljótist af.
Alls konar eiturefni hafa reyndar komið úr gígum eldfjalla og valdið dauða bæði manna og dýra. Ég veit þó engin dæmi þess að þau flokkist undir dóp eða vímugjafa sem menn neyti sér til ánægju.
Nei ! Áfengi, tóbak og önnur efni sem vímugjafar kallast eru með öllu hættulaus þar sem þau standa í umbúðum sínum.
Það er ekki fyrr en þeirra er neytt, hvort heldur sem er, að eigin vali, slysni, eða þröngvað í fólk, sem áhrif þeirra geta orðið skaðleg.
Sem sagt. Brennivín drepur engan. Menn geta aftur á móti hæglega drukkið, dópað, eða reykt sig í hel. Neyslan getur verið hættuleg, ekki efnið. Ef við tökum magnyl töflur sem dæmi, þá detur engum í hug að tala um þær sem hættuleg eiturlyf. Það er þó vitað að neysla magnyl hefur oft slæm áhrif á magann.
Sá sem tæki upp á því að éta 50-100 magnyltöflur á dag þyrfti ekki að hafa áhyggjur af elliárunum.
Svona er þetta nú og fréttir á borð við eftirfarandi koma ekki til með heyrast né sjást.
34 áfengisflöskur, 40 karton af sígarettum, 50 gr. af amfetamíni ásamt fjölda lyfjaglasa úr Rima-apóteki réðust enn einu sinni á miðaldra mann í miðborg Reykjavíkur í gær og myrtu á hroðalegan hátt. Lögreglan stendur agndofa og enginn hefur verið handtekinn. Þetta er fjórða morðið sem þetta illræmda glæpagengi er grunað um að standa á bakvið í þessari viku
Ég er nú farinn að þorna all ískyggilega í kjaftinum og ætla að fá mér nokkra bjóra, vindil og góðan lyfjakokteil.
Kem kannske aftur og skrifa einn pistil um líkamsrækt og æfingar ef ég hangi uppi, en ég hef ekki sofið í all langan tíma.
Kær kveðja Vímus.
Ég löngum drakk mitt viskí og vel þó lifi enn
en vatnið böl**ð hefur drepið marga góða menn.