Einhvern veginn finnst mér ég vera litinn hálfgerðu hornauga hér. Þetta þarf ekki að vera rétt ályktað, þar sem langri lyfjaneyslu fylgir oft allskæð paranoja. Ég var að líta yfir það sem ég hef látið frá mér fara á þessum vef og ég sé að flest er sent í algjöru minnisleysi. Í dag hef ég innbirt óvenjulítið af lyfjum og drykkjan er ekki umtalsverð. í mesta lagi 20 bjórar.
Nú langar mig að láta eitthvað viturlegt frá mér fara. Ég vona að þessi staka megi gagnast öðrum en mér.
Býrðu enn við þarflaust þrasið
þesskyns vanda leysa má
konuna og græna grasið
gleymdu aldrei vel að slá