Hógværðin og einstakt lítil-læti
líf mitt hefur einkennt alla tíð.
Í samkvæmum ég sálarástand bæti
hjá soralegum Gestapóa lýð.
Margri hef ég mannleysunni bjargað,
metnað vakið ræfilstuskum hjá.
Druslum þessum hefðu flestir fargað
færni mín að notum kom vel þá.
Vandann ég með góðum lyfjum leysti
lyftiduftsins máttur sannast hér.
Vonlausa ég upp þá ræfla reisti
reynist enginn í því fremri mér.
Hef ég aldrei heyrst af slíku raupa
heldur ekki þiggja nokkur laun.
þjónustuna má þó af mér kaupa
þegar lífið verður ykkur raun.
Tu ert bysna gott skald Vimus gamli. Dopari af gudsnad og hvad skyldi vera meira i tig spunnid.
Vonandi tarf eg ekki ad panta hja ter en samt gott ad vita af ter.
Hógværðarinnar vegna á ég nú ekki auðvelt með að telja upp hvað meira er í mig spunnið og í öðru lagi tæki það slíkan óhemju tíma og pláss að slíkt er ekki framkvæmanlegt, hins vegar er þér Hot Spot velkomið að kanna það í eigin persónu.
Ætla ad skoda dagatalid fyrir juni. Ef tad er mikid af daudum tima og eg se ad danskortid er halftomt ta gæti verid ad eg reyndi ad komast ad tvi hvad byr a bak vid gredduutlitid.
Afar hógvær og lítillát markaðssetning. Það er inn.
[Laumar nafnspjaldi í veskið]
Fær maður kunningjaafslátt?
Skál gamli grís og farðu vel með þig elsku ljúfurinn.
Hættu þessu væli og gémmer uppskriftina af metamfetamíni, ellegar ég dæli í þig metan gasi !
Flott kveðið engu að síður.