Mér er hreint ekki skemmt þessa stundina. Ástæðan er sú að helvísk tölvan neitar hvað eftir annað að hlýða mér. Það sem ergir mig mest er að þessum dintum tekur hún oftast upp á kl 7- 8,30 í morgunsárið. Það hefur hent mig hvað eftir annað (seinast nú í morgun) að ég hef ekki staðið mig í stykkinu sem Næturgöltur allra tíma vegna þess að tölvuhelvítið hefur ekki úthald á við mig. Er það furða þó maður felli nokkur tár. Ég ætla ekki að eyða meiri tíma í þessi skrif af þeirri einföldu ástæðu að ég efast um að þau komist til skila. Ég gerði nokkrar árangurslausar tilraunir til að senda smá komment með pistlunum sem hér eru en aðeins eitt skilaði sér. Jæja sjáum hvað setur.
Var eimmitt að komast að svolitlu skemmtilegu varðandi mína tölvudruslu. Þetta óáræðanlegasta dóp sem fyrirfinnst!