Minningarbrot föðurs
Í gamla daga fór miklum sögum af stórsöngvaranum Bebba Gúa. Hann kom fram í félagsheimilum á norðaustanverðu landinu um miðja síðustu öld og söng svo fallega að enginn fór ósnortinn heim af tónleikum hans. Ekki er vitað hvort hann er enn á lífi eða hvar han er niður kominn og eftir því sem næst verður komist er ekki til mynd af Bebba. Hann þótti svo ófríður að hann kom alltaf fram í pappakassa.