Önnur umferð æskuminninga Joð Stalíns.<br />
Er ek hafði numið land við Papúa Nýju-Gínueu skoðaði ek mig um. Á miðri eyjunni sá ek þorp og fékk ek að tala við höfðingjann. Hann bauð mig velkominn og sagði að sannarlega - en á þeim tíma var ek ekki mikið fyrir formlegheit svo ek skaut höfðingjann og steig þrjú skref aftur fyrir mig á meðan kjarnorkusprengju var varpað á þorpið. Það sama gerði ek oftar þar til enginn var enn eftir á Papúa Nýju-Gíneu nema ek og liðsmenn mínir. Af því tilefni ákvað ek að krýna mig þjóðhöfðingja Papúa Nýju-Gíneu.
Áður en langt um leið endurmynduðu eyjaskeggjasamfélög sig og útbreiddu neikvæðan boðskap. Það endaði á því að bylting hófst.
Eyjaskeggjar réðust í höfuðborgina, Joðgrad, og er þeir höfðu drepið alla liðsmenn mína ákvað ek að þetta gengi ekki. Ek fór því og skaut hvern á fætur öðrum. Vá, sælutilfinningin sem hríslaðist um mig.
Að svo loknu ákvað ek að gera innrás í Japan.
Ef þið viljið lesa um það verðið þið því miður að bíða eftir 'Æskuminningum III'.
Já eða svona næstum því . Ég ætlaði að koma með sviðslýsinguna glottir en fann ekki hornklofana á straujaða fartölvugarminum mínum.
Já - sannlega er þetta að mínu skapi. Vonandi koma sem flest af þessari tegund.