Hér með tilkynni ek það með trega og sorg að ek sé mér ekki fært að komast á árshátíð Baggalútíu 17. nóvember næstkomandi vegna ástæðna í Raunheimum. Dreifir vasaklútum
Það er svipað ástatt fyrir mér. Þó ekki alveg útséð með tilfæringar á raunheimum, kemur vonandi nægilega snemma í ljós.
Það er ekkert, ekkert, EKKERT mikilvægara en að mæta á árshátíð. Fyrst BúbbNornin gat skipulagt getnað og fæðingu marga mánuði fram í tímann EINGÖNGU til þess að geta mætt á árshátíð og hirt verðlaun fyrir krumpaðasta Gestapóann getur þú alveng hundskast til að sleppa heilaskurðlækningum eða eldflaugarannsóknum eða hvað það nú er sem er svona merkilegt eina skitna laugardagskvöldstund! Og mahnamahnanú!