Fann loksins merkingu J-sins í nafni mínu.
Þetta hefur í langa tíma verið að vefjast fyrir mér. Stundum þegar nauðsynlegt var að fylla út fullt nafn sagði ek einfaldlega Jósef, til að hafa eitthvað. En nú, eftir mikla ævintýraferð, hef ek komist að því hvað J-ið merkir. Ek fór yfir fjöll og fyrnindi, óð eld og brennistein og seldi fæðingarvottorð mitt til að komast að því. Ek tilkynni það hér með að fullt nafn mitt er: Lítur stoltur í kringum sig og hefur upp raust sína Joð Stalín! Jahá, hér hafið þið það. Lausn á því sem ek hef verið að leita að í langan tíma! Joð Stalín heiti ek, og er ánægður með það.
Þakka yður fyrir lesturinn.
Nú gæti reynst erfitt fyrir þig að sanna að þú hafir fæðst, þar sem þú seldir fæðingarvottorðið þitt.
Ég tek það þá fram hér að St. í nafni mínu stendur fyrir Saint. Ekki Steinn.
Ég hélt að það stæði fyrir straw eins og í bjór [Brosir út fyrir eyru og lyftir báðum höndum hátt upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta alveg ótrúlega fyndið]
Heyrðu... er þetta J sem verið er að tala um í lok lagsins Egils Appelsín með Spilverki Þjóðannna?