Frásögn femínista af því hvernig það veitti henni lífsfyllingu og innri frið að kaupa ekki nokkurn skapaðan hlut í einn dag, hvernig heiðarleikanum var ýtt til hliðar og stelsýkinni gefin laus taumurinn.
Ég keypti ekki nokkurn hlut síðastliðinn laugardag enda er ég meðvituð með eindæmum og tek þátt í þjóðarátökum að ýmsu tagi.
Dagurinn byrjað snemma, ég stal skóm nágrannans og skundaði út í bakarí. Þar stal ég kringlu og kókómjólk meðan útlenski starfsmaðurinn brá sér frá til að spyrja bakarann hvort þeir seldu snittubrauð með súkkulaðifyllingu. Í hádeginu hélt ég áfram á þessari nýju en spennandi braut og tókst að fylla tankinn hjá mér af bensíni að verðmæti sex þúsund íslenskra króna og stinga af. Seinni partinn skrapp ég út í sjoppuna á horninu og nappaði kók og prins meðan gamli karlinn rótaði í neðstu skúffunni til að leyta að kartoni af eldspítum, sem ég hafði beðið um til að villa um fyrir honm. Um kvöldið lagði ég síðan leið mína á pöbbinn bauð á línuna og drakk mig fulla. Neitaði svo að borga og sagði lögguni sem var á endanum kvödd á staðinn að barþjónninn hataði mig því hann héldi að ég væri pólsk.
Þetta var góður dagur og ég get ekki beðið eftir næsta kaupum ekkert átaki þjóðarinnar.
Þetta er eitt það besta og mest uppbyggjandi félagsrit sem hér hefur birst lengi. Ég er verulega ánægður með þig. Það er frábært hvernig þú hefur getað sameinað marga vafasama eðlisþætti þína á einum degi. Mótmælandinn, þjófurinn, drykkjuboltinn, lygarinn, ökufanturinn, nammifííkillinn og rasistinn, fengu allir að njóta sín þennan eina dag. Snilld.
Feministi er örugglega ekki pólsk. Eina orðið sem ég kann í pósku er ,,tak" (eða dak) sem þýðir ,,já".
Da er rússneska orðið yfir já.
En það vita nú allir.
Ég keypti heldur ekkert í gær.
Sérstaklega frumleg aðferð að neyta en kaupa ekkert og taka þátt í átaki um leið.
[Klappar]
Ég vissi nú ekki af þessu átaki fyrr en ég heyrði um það í kvöldfréttunum. Sé eftri að hafa ekki stolið því sem ég keypti. Er ekki annars í lagi að gefa stolnar jólagjafir?
Ég er að spá í að taka þetta upp sem lífsstíl, líst vel á þetta. Maður sparar örugglega heilmikið á þessu. [Glottir]
Eg keypti ekki neitt, stal engu. Setti sjálfur kökuna í krúsina daginn áður og át síðan með bestu lyst.
Annars er spurning hvort þetta sé orðinn ákveðinn lífsstíll eins og Álfelgur segir. Samt vissara að hafa þetta meira svona spari...
Kaupum ekkert dagurinn er gagnslaus ef við kaupum það bara daginn eftir.
Við hljótum að verða að sleppa einhverju þá alveg.
Og mig líka
En hvað ertu annars að gera hér Græni væni ?
ef mig rekur minni í þá voru sumir hættir Flissssss...
Mér finnst að það ætti að stela öllum jólagjöfum - það er svona í anda jólasveinanna.