Maðurinn hefur bætt sér upp klæðaleysið með ýmsum höfuðfötum.

Tannlæknir á sextugsaldri hefur heitið því að klæða sig ekki fyrr en Ísland hefur sigrað í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurosision.

Raunar strengdi hann heitið árið 1994, þegar Sigríður Beinteinsdóttir keppti með lagið Nætur að vopni. Hefur hann staðið við orð sín síðan, þó reyndar hafi hann einu sinni fallist á að vefja sig flísteppi þegar hann kvefaðist illa árið 2005.

Er maðurinn að vonum spenntur að sjá hvernig Íslandi reiðir af að þessu sinni og ekki síður fjölskylda hans, vinnufélagar og sjúklingar, að ógleymdum nágrönnunum, sem margir hverjir eru orðnir langþreyttir á Júróstriplingnum, eins og hann er jafnan kallaður.

Ritstjórn Baggalúts, veturinn 2012–2013.

Ritstjórn Baggalúts er farin í langþráð og verðskuldað sumarleyfi.

Þetta var fyrsta starfsár Baggalúts, sem ritstjórnin var aðeins skipuð konum — og báru efnistök þess glögg merki. Hlutfallslega var minna talað um fantasíulesbíisma, mæjónes, boltaleiki og vélmenni en oft áður.

Heimsóknum fjölgaði um 230% á tímabilinu, ánægja viðskiptavina jókst um 42%, áskrifendum fjölgaði um 83% á ársgrundvelli og auglýsingatekjur voru í sögulegu lágmarki.

Hafið það gott í sumar og passið ykkur á myrkrinu.

Ármann á neðri hæðinni, e.þ.s. Margrét Þórhildur býflugnadrottning.

Vorið er komið og þá fara býflugnadrottningarnar á stjá. Maður sem heldur því fram að hann sé býflugnadrottningin Margrét Þórhildur, hefur komið sér fyrir í hjólageymslu í sameign blokkar við Meistaravelli í Reykjavík, þar sem hann hyggst koma sér upp „búi“ fyrir sumarið.

Hann hefur auglýst eftir þernum í Fréttablaðinu og vonast til að búið verið komið í fullan gang um miðjan næsta mánuð.

„Hann Ármann á neðri hæðinni hefur alltaf verið óttalegur asni og þetta er fjórða sumarið í röð sem hann er í þessu býflugnastússi sínu,“ segir Svava S. Svavarsdóttir, formaður húsfélagsins. „Maður myndi náttúrulega stoppa þetta - en hann framleiðir gott hunang. Hann má eiga það.“

Margir hyggjast eyða öllu sumarleyfi sínu í búðunum.

Lögregla fann í kvöld vinnubúðir þar sem tugir manna voru á fullu við að skrifa dónaskap, róg, níð, kerskni og skrítlur um Vigdísi Hauksdóttur, sjálfskipaðan fjölmiðlatrúð og þingkonu.

Við fystu sýn virtist sem allt þetta fólk væri í fullu starfi við að níða skóinn af Vigdísi og skrifa andstyggilega hluti um hana, málfar og útlit. Við nánari eftirgrennslan kom þó í ljós að fólkið gerði þetta að gamni sínu, í eigin frítíma.

Lögregla lét því búðirnar óáreittar.

Þessi fallega apamynd tengist fréttinni órjúfanlegum böndum.

Ný ríkisstjórn Íslands verður í svokallaðri háskerpu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá nýju stjórninni, sem segist rosa spennt að fá að ráða — strax eftir sumarfrí. Eða fljótlega.

Þetta eru einu nýmælin í stjórnarsamstarfinu. Að öðru leyti verður hún eins og síðasta stjórn, nema „með færri kjeeellingum“ eins og það er orðað.

Kolbeinn var ekki par hrifinn af banninu.

Hinum kunna skipstjóra og herragarðseiganda, Kolbeini Kjálkabít, hefur verið meinaður aðgangur að öllum helstu kommentakefum landsins, þ.á m. á DV, Vísi, Pressunni og Eyjunni.

Er það einkum vegna óheflaðs munnsöfnuðar og ógætilegs málfars, en nokkuð hefur verið kvartað undan honum á athugasemdakerfum undanfarið — einkum eftir að hann kallaði Eurovisionfara Íslands „loðkjammaðan, lagvilltan landkrabba frá Landeyjahöfn“.

„Fari það í milljón maðkétna mannætuhákarla, þessir landkrabbar geta bara étið útmigin ufsahöfuð frá Örfirisey,“ sagði Kolbeinn þegar hann var beðinn um álit sitt á banninu.

Brúðugerðarmeistarar brúðubílsins hafa unnið þrotlaust að brúðunni í allan vetur.

Bítillinn góðkunni sir Paul McCartney semur tónlistina í sumarsýningu Brúðubílsins í ár.

Er þetta að vonum mikil og góð kynning fyrir bítilinn geðþekka, og ekki síður fyrir litla, sérkennilega landið sem hann býr í — en það kallast England.

Þess má geta að gerð hefur verið brúða í líki sir Paul, sem mun leika á móti hinum þjóðþekkta Lilla apa. Munu þeir félagarnir leika í hómóerótískri ástarsenu sem ber heitið: Everybody's got something to hide except me and my monkey.

Leiðtoginn hnellni tók nokkur létt dansspor á lokaæfingu.

Lýðveldið Norður–Kórea hefur lýst yfir sigri í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision.

Krefst leiðtogi landsins, sem einmitt er mikill aðdáandi keppninnar, skilyrðislausrar uppgjafar Evrópuþjóða fyrir upphaf útsendingar í kvöld og að þau dragi lög sín til baka — ella muni hann gjöreyða Evrópu í „eilífu eldhafi eyðileggingar og skilyrðislausrar gagnkynhneigðar“ eins og það er orðað.

Ætlar hann sjálfur að flytja framlag Norður Kóreu í kvöld frammi fyrir heimsbyggðinni, en það ber titilinn „Ég á kjarnorkuvopn“.

Dressið er handspunnið af 300 tælenskum lögfræðingum á hefðbundnum lögfræðingataxta.

„Já. Það er rétt. Ég flaug til Tælands og lét sauma á mig rautt silkidress úr smaragðslögðu, fílabeinssmurðu nashyrningshornshertu silki. Mjög smart,“ segir Birgitta Snæfjörð, heildrænn ráðgjafi.

Birgitta tók 17 milljóna króna kúlulán til þriggja vikna með veði í endurgreiðslu Framsóknarflokksins sem hún býst við að berist innan tíðar, „líklega bara um helgina.“

Brot úr snappi frá framsoknarfrenzy til bbbeibmaster.

Öruggar heimildir eru fyrir því að stjórnarmyndunarviðræður Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar fari nú eingöngu fram gegnum hraðsamskiptaappið Snapchat.

Aðstoðarmenn formannanna staðfestu þetta nú í morgun og sögðu að þeir Bjarni og Sigmundur hefðu verið „gersamlega trylltir að snappa í alla nótt“ og hefðu missæmileg myndskeið flogið á milli formannanna, við mismikla kátínu ráðgjafa þeirra.

Þeir sem vilja leggja sitt til viðræðanna geta sent snöpp á framsoknarfrenzy og bbbeibmaster — en fólk er þó beðið að stilla „líkamspartapics“ í hóf.

Skrípó
Lesbók
Enter
 
Þjóðbók
Smælki

Til sölu

tveggja manna geimskip, gult, ekið 14.000 ljósár. Skipti á smábíl koma til greina.

ÞINGMENN!

vorum að fá nýja sendingu af jogginggöllum og hlýrabolum. Verið þægilega klæddir í þinginu.
Verzlun Ingvars.

Ráðvilltur og reiður?

Upphafssíður í miklu úrvali. Gular, rauðar, grænar og dökkbláar. Internet Villa, Korputorgi.

Eistu týndust

í hestaferð um Austurland milli jóla og nýárs.
Fundarlaun!
A.v.á.

Tek að mér

að prenta út fyrir fólk. A4 eða minna. Fullum trúnaði heitið. A.v.á.

Atvinnurekendur!

Vorum að taka upp glænýja sendingu af írskum þrælum. Gott verð, góð þjónusta.
Þrælaverslun Hafliða - Garðabæ

Kolfinna
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA