Samkvæmt mínum upplýsingum tíðkast einhverskonar rafmæli í sk. raunheimum. Miðast þau við fæðingardag (eins konar skráningardagur raunheimaeinstaklings). Raunheimaleikkona mín hefur haft miklar áhyggjur af aldri sínum undanfarið og eftir skammarlega hegðan hennar á Árshátíðinni hef ég ákveðið refsingu við hæfi.
Ykkur er hér með boðið að senda raunheimaleikara að heimili raunheimaleikkonunnar minnar næstkomandi laugardagskvöld. Í boði verða léttar veitingar (í föstu formi) og tónlist. Aðal skemmtiatriði kvöldsins mun síðan felast í því að benda á hina seku og hlæja.
Áhugasömum er bent á að hafa samband í einkapósti.
P.s. Eggjakast verður ekki leyft, þar sem ég þarf víst að þrífa eftir (gilli)gillið.
Ég þakka gott boð en ég veit ekki hvort ég þori að mæta enda á förum til s.k. útlanda eldsnemma á sunnudag.
Þar sem allir vita að s.k. útlönd eru áróðursbrella óvina ríkisins, ætti þér að vera óhætt.
Ég hef nú alltaf verið svag fyrir léttum veitingum á föstu formi síðan maður stundaði Melkweg hér í denn.
Það fer eftir því hvort hún hagar sér vel fram að helgi. Ég hleypi henni kannske í einn ef hún er þæg. [Glottir]
Til hamingju með þetta raunheimarafmæli.
Ég þakka gott boð, en leikarinn minn verður í sumar- eða vetrarbústaðarferð á sama tíma.
Ég nenni nú ekki að sækja fimmtugar kerlingar heim lengur - peningurinn var ekki orðinn þess virði. Skemmdur skaufi og sært sjálfsálit... Jökk!
Þetta er vel íhugunarvert... OG EF ÉG MÆTI ÞÁ VERÐ ÉG FULLUR OG ENGAR REFJAR NÉ RIFJASTEIKUR MEÐ ÞAÐ!