Vilhelm Sigurðarson, trúleysingi og spákaupmaður, hitti í morgun Guð, föður (almáttugan), betur þekktan sem skapara himins og jarðar.
Vilhelm sagðist í fyrstu ekki hafa trúað sínum eigin augum - skiljanlega - en þegar Guð sýndi honum nokkur einföld töfrabrögð og skapaði lítið fleygt nagdýr handa honum, lét hann loks sannfærast.
Mest segir Vilhelm það hafa komið sér á óvart hve eðlilegur Guð væri og alþýðlegur - og eins að hann skyldi vera örvhentur.
Pabbi þarf að vinna
Köntrískífan Pabbi þarf að vinna er komin í verslanir okkar. Ath. vegna gífurlegrar eftirspurnar er aðeins boðið upp á eina skífu á mann - konur og börn ganga fyrir.
Karnabær.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.