— GESTAPÓ —
Nykur
Nýgræðingur.
Saga - 31/10/03
Einu sinni var...

Lífshlaup athafnamanns og lífskúnstners.

Vegna fjölda áskoranna, ýmissa tilmæla og með ólíkindum mikils áhuga samferðamanna minna, þá hef ég ákveðið að birta hér kafla úr bókinni (Sérlega merkilegir athafnarmenn og aðrir síður merkilegri menn en þó merkilegri en almúgafólk) sem mun að öllum líkindum koma út fyrir næstu jól. höf.: Nykur.

Eftirfarandi er á bls. 1 og hefst fyrsta paragraf á þessa leið:

-NYKUR-

F. Í Kumburtjörn hjá Skarði undir Skarðsfjalli í Landsveitá 1. nóv. 1868, For.: Grár graðhestur frá Kumburtjörn (f. 1. sept. 1835, d. 20. feb.1905) og Guðrún Jónsdóttir (f. 9. apríl 1848, d. 1. nóv. 1868) húsmóðir að Skarði undir Skarðsfjalli í Landsveitá. Ólst upp bæði að Skarði og í Kumburtjörn. Fór utan til náms og las tvo áfanga um farfugla í Hafnarháskóla 1884-88 en tók ekki próf. Var við verklegt nám í gróðrarstöðinni Alaska vorið 1889. Lauk stúdentsprófi úr Frúarskólanum í Kaupmannahöfn 1892. Gerðist 1. maí 1892 lögregluþjónn í NUUK, Grænlandi. Varafulltrúi fulltrúa bæjarfógetans í Reykjavík 1893. Sýslumaður í Suður-Mýrarsýslu 1894—1911, sat á Eskifirði þar til Eskifjörður gafst upp og gegndi þá um hríð stöðu umboðsmanns erlends tryggingafélags nóv. 1912 — des. 1912 í báðum Mýrarsýslum. Fluttist til Reykjavíkur og varð yfirburðamálaflutningsmaður fyrstur sinnar tegundar og "laungu á undan sumum" (1913) jafnframt því að vera formaður Félags róttækra stúdenta og erindreki í Fjárkláðamálinu mikla 1913—1939. Fararstjóri í för föðurbróðurs stjúpsystur Friðriks konungs VIII austur í sveitir (1915). Ræðismaður Páskaeyja frá jún. 1916 - okt. 1916 eða þartil eyjan brann til kaldra kola í miklum sinubruna 1916. Samdi ferðabók (yfir Páskaeyju og niður hinum megin) (1919).: Þar sem hann kom m.a. með þá umdeildu og fyrir margar sakir stórmerkilegu kenningu að hinar margrómuðu styttur eyjarinnar væru í raun stór útigrill, sannaði hann næstum tilgátu sína á eftirminnanlegan hátt haustið 1916 þegar hann gerði tilraun til að heilgrilla nautskrokk í einni af styttunum. Á árunum 1918-68 gerðist hann mikill talsmaður Esperantó og samdi m.a. margar esperantóorðabækur, m. a. Esperantó til lestrar í heimahúsum og Esperantó og þú. Samdi rit á ensku um mikilvægi norrænnar tungu sem aldrei var gefin út (1968) "Vegna skrópagemlinga, afturhaldssinna og helvítis hálfvita hjá Almenna Bókafjelaginu" Að sögn höfundar. Skrifaði bókina Nykur og aðrir síður þekktari samtíðarmenn hans (1968). Kosinn 1969 í neyðarráðstafananefnd vegna Stóra karftöflusvindlsins sem varð til þess að þáverandi Forseti Íþróttasambands Íslands og Skátahöfðingi Íslands þurftu að segja af sér embættum. Um hann er bókin (Býr Nykur hér) eftir Hannes H. Gissurarson (1995) Skrifaði handrit að, lék í og leikstýrði stórmyndinni og epísku þjóðfélagsádeilunni, sem var í senn hádramatísk og afarspennandi erótísk ástarsaga með gamansömu ívafi á rólegu nótunum: Ástir og raunir forsætisráðherrans á Nikurvöllum.(2004) Tók við embætti Forsætisráðherra Baggalútíu eftir byltinguna (2003) og gegnir því starfi til æviloka.

   (3 af 4)  
31/10/03 06:01

Frelsishetjan

Það er rétt að þú munt gegna þessu starfi til æviloka, enda er ég búinn að skipuleggja að koma þér fyrir kattarnef.

31/10/03 06:01

Nykur

Hnuss... Hræðist ekki ketti og annan fiðurfénað.

Nykur:
  • Fæðing hér: 12/11/03 12:59
  • Síðast á ferli: 1/1/12 02:51
  • Innlegg: 0
Eðli:
Nykur er bæði í ám og stöðuvötnum og jafnvel á sjó. Hann er líkastur hesti að öllu skapnaðarlagi, oftast grár að lit, en þó stundum brúnn, og snúa allir hófarnir aftur, hófskeggin öfugt við það sem er á öðrum hestum; þó er hann alls ekki bundinn við þessi einkenni; hitt er honum eiginlegt að hann breyti sér snögglega á ýmsa vegu að eigin vild. Þegar sprungur koma í ísa á vetrardag verða þar af dunur miklar; segja menn þá að nykurinn hneggi. Hann kastar fyli eins og hestar, en allt í vatni, en þó hefur það borið við að hann hafi fyljað hross manna. Það er einkennilegt við alla þá hesta sem undan nykur eru að þeir leggjast niður hvort þeim er riðið eða þeir bera bagga yfir vatnsfall sem vætir kvið þeirra, og hafa þeir þá náttúru af nykrinum því hann heldur sig á landi við ár og vötn sem eru ill yfirferðar; er hann þá spakur og tælir menn til að ríða sér yfir. Þegar það hefur borið við að menn hafi farið honum á bak hleypur hann óðar út í vatnið og leggst þar og dregur þá með sér, er á honum sitja, niður í vatnið. Ekki þolir nykur að heyra nafn sitt eða nokkurt orð er því líkist, þá tekur hann viðbragð og hleypur í vatnið.
Fræðasvið:
Kvikmyndagerð, Hlöðuvíkurdraugurinn, bjarndýr, Suður-amerískir dansar.
Æviágrip: