Samkvæmt áræðanlegum heimildum er búið að breyta nafni sjálfstæðisflokksins.
Foringinn ei flokkinn kveður
sem flestir bjuggust við í dag
Hvort sem er var skaðinn skeður
og skýrt skal flokkinn Bjarnaflag.
Gengur þá Steingrímur joð ekki snemmhendis í flokkinn til að klára að virkja hann?
OG SKÝRT SKAL FLOKKINN!
Hvurslags adskotanns málfars marhnútur er þetta eginlega.
Skírum flokkinn Bjarnaflag. Væri skömminni skárra.
Það er sind að skemma annars ágæta vísu með svona málfari.
Synd Mjási... synd.
Alltaf sniðugt að passa sitt eigið málfar, ef maður er að benda öðrum á sitt...
Mjási hefur alveg rétt fyrir sér, hann er góður í málfari en lélegur í stafsetningu.
Mér finnst málfarið mikilvægara.
‹Fer í fýlukast› Er hér enginn flóarfriður fyrir málfarsmarhnútum? Þetta er mitt málfar og hvort eð er var ykkar málfar asnalegra í mínum eyrum. Það fer enginn að segja mér að ykkar málfar sé eitthvað réttara en mitt.
‹Strunsar útaf sviðinu sparkar í kattarskömmina og skellir dyrunum fast á eftir sér›
Aðgát skal höbbð í nærveru viðkvæmrar sálar, þótt vel sé í skinn komið.
Þetta var bara fínt hjá þér Offari. Þegar við frammarar verðum komnir í mennta- og menningarmálaráðuneytið þá skulum við sko leifa ofstuðlun, méringar, bull og vitleisu! Og hætta með ifsilonið...
Þetta er góð vísa.
Mjási skammar Offara, Grágrímur skammar Mjása, ég skamma Grágrím, Billi skammar mig, og svo fer Offari í fýlu. Þetta fer að verða eins og á DV, og þó, nei. Það skal aldrei.
Er þetta þá formlega orðið að laumupúkariti? <Laumupúkast þannig að enginn sjái til>
Varla telst þetta laumupúkarit fyrr en það er farið af forsíðuni. En fyrst krúttið er mætt lofar það góðu
Vjer erum EIGI krútt ! [Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer og mistekst þar með sökum hávaða að laumupúkast]
Ertu að meina þessar 3 línur Golíat? :
Offari
Heiðursgestur.
Sálmur - 13/4/13
Og sjá; Upp úr flaginu reis Bjarni nýskúraður, mannlegur og aumkunarverður eins og litla stúlkan með eldspýturnar.
Tel ég nú, að flokknum hafi verið gerður mikill Bjarnagreiði með þessari ákvörðun.
Sparkaðirðu í köttinn ódóið þitt. [Setur Offara á listann yfir óvini internetsins]
Ég hef örggulega oft verið stafrændur, Það kemur nefnilega oft fyrir hjá mér að söfum hafi verið stolið frá mér þegar ég rita eitthvað á internetinu.
Ég myndi leggja mestan pening á DAS stjórn, næst myndi ég leggja á BSV og loks á BAS.
Nú þú segir fréttir, Ég hélt að þetta væri alllt að smella saman hjá þeim. Það er orðið miklu bjartara yfir og hlýrra því engu líkara en að Framsókn sé komin í stjórn.
Er það ekki bara af því að Jóhönnu líkar svo vel að vera í forsæti starfsstjórnar sem enginn getur skammað?
Þetta eru örugglega bara leyfarnar af vinstra vorinu sem eru að ganga yfir.
Allt eignið þið nú ykkur framsóknarmenn! Meira að segja telur þú að vorið sé ykkur framsóknarmönnum að þakka. Jahérna hér!
Væri það ekki "Framsóknarfor" ef það ætti að stuðla? <Klórar súg í höfuðstafnum>
Hér kemur fimmtugasta ,,tjáningin" um klámið hans Offara.
Það er bara þónokkur umfjöllun....
Ég sagði það það færi að vora um leið og Framsókn kæmi í stjórn. Verst að fyrri ríkísstjórnir skilja allaf eftir sig verra búi en reiknað var með þegar kosningaloforðin voru gefin.
Stenst það fréttirnar frá 14. maí um verri hag og svo 29. maí um betri hag ríkisfjármálanna? <Klórar súg í höfuðpaurnum>
Það stenst allveg. hagurinn batnaði um leið og örguggt var að Framsókn var komin í stjórn.
Þannig að á tveim vikum í maí náðu þeir að bæta rekstrarafgang jan-ap stórkostlega. <Ljómar upp>