Andóf gegn Nihilisma.
Innleggjum hér er eytt,
ósköp hvað það er leitt.
Fargað ágætum fræðum;
félagsritum og ræðum
- um andskotans ekki neitt.
mikið vildi jeg að jeg gæti ort svona. Ketill Larssen og jeg höfum rætt í raunheimum um að jeg fari að virkilega taka mig á á hinu almenna netspjalli og fara að læra hluti á borð við að kveða á íslensku.
Hér er rætt um kveðskap á öðrum málum en íslensku. Vinsamlega athgugið að aðeins má yrkja á íslensku, latínu, esperanto og klingonsku. Þá má lokalína vísu vera á þýsku. Svo má ég yrkja á færeysku, Kiddi Finni á finnsku og Billi bilaði á tasmönsku en ekki aðrir. Arne Treholt hefur verið sviptur rétti til að yrkja á norsku. Enginn má yrkja hér á ensku eða dönsku og allra síst á belgísku.