Donald John Trump, fígúra og verðandi valdamesti maður heims, fær í dag góða gjöf frá íslensku þjóðinni í tilefni af embættistöku sinni.
„Okkur þótti þetta bara vel við hæfi að færa honum forláta íslenskan þorrabakka með öllu tilheyrandi,“ sagði skemmtanastjóri utanríkisráðuneytisins aðspurður um þessa sérstöku gjöf.
„Þetta er þjóðlegt, geymist vel og ætti að vekja verðskuldaða athygli, ef þetta kemst í gegnum öryggisgæsluna. Svo er þetta líka einhvern veginn lýsandi fyrir Trump sem einstakling. Hann er einmitt svona gamaldags súr pungur, nett slepjulegur — og alls ekki allra.“