Ég tel mig vera samsíða sjálf
En nú tel ég mig hafa að auki hafa fundið mörg samsíða gestapó - og fjöldan allan af samsíðungum sem stunda þau - á NÁKVÆMLEGA sama hátt og við!
Fyrst skal auðvitað nefna staðinn sem við öll elskum, vefur sannleikans http://baggalutur.is/gestapo
nú og svo er auðvitað and-veruleikinn okkar, Lygavefurinn http://baggalutur.com
En að auki hef ég rekist á:
http://baggalútur.is/gestapo
http://baggalút.is/gestapo
http://baggalúti.is//gestapo
http://baggalúts.is/gestapo
Hver er eiginlega ástæðan fyrir þessu?
Var Hakuchi að setja víddaraskarann á auto?
Er þetta lúmsk leið ritstjórnar til að fimmfalda lesendafjölda vefsins?
Eru þetta tálbeitur til að villa um fyrir óvinum ríkisins?
...eða öllu heldur, skyldum VIÐ vera tálbeitan? Fölnar og efast um tilvist sína
Held að það sé ritstjórn sem stendur fyrir þessu - og viðurkennir það alveg.
Selur ritstjórn "designer shoes, dress shoes, bags, Gucci handbag, handbag, shoes" ?
Sökum alþekktrar fjölhæfni ritstjórnar teljum vjer slíkt eigi útilokað.
Þess ber að geta að vjer höfum í talsverðan tíma vitað af þessum samsíða heimum, sjer í lagi eftir að vjer fluttumst af einhverjum ástæðum fyrirvaralaust milli slíkra heima. Þessir heimar eru líkir en eigi nákvæmlega eins. Í heiminum sem vjer vorum upphaflega í snerist t.d. tiltekinn þráður um mögulegan hitting en í þessum heimi snýst hann um hannyrðir.