Nú rétt áðan varð ég var við miðnæturfrost. Það varði tæpa mínútu...
Nei reyndar ekki, mér varð svo um þetta.
Þá mun Þjóðskjalasafnið ekkert af þessu frétta, né heldur komandi kynslóð Klórar sér í höfðinu
Segjum bara kl 00.00 og hafi staðið þar til rétt áður en klukkan sló 00.01
Þetta er væntanlega líka heimsmet, þú verður örugglega á síðum Heimsmetabókar Guinness.
Stekkur hæð sína
emm... nei miðnæturfrostin í gamla daga vörðu í meira en 10 mínútur stundum.
Nostralgíast Ég næstum sakna miðnæturfrostanna, þau voru ágætis mælikvarði á það hvenær maður ætti að fara að sofa. En ég veit ekki hve glaður ég yrði ef þau myndu dúkka hér upp aftur.
Ég hata miðnæturfrost, ég man ekki betur en að ég hafi farið í mótmælagöngu gegn miðnæturfrosti á sínum tíma.
Ég hef ekki upplifað miðnæturfrost hér á Gestapó svo misserum skiptir. Hvað eru menn að kvarta?
Ég hefi kvartað appelsínu svo úr urðu bátar.
Til hvers í andlausum ósköpunum erum við að reyna að troða okkur í þetta bannsetta öryggsráð, þessa gauðrifnu gúmmíverju sem engum gagnast og engum er til gleði?
Höfum við virkilega ekkert betra við peningana okkar að gera en að sleikja okkur upp misgeðslegar bakraufar tundurspilltra smákónga út um hvippa og hvappa til þess að næla okkur í sæti í þessum sundurleita saumaklúbbi?
Til hvers?
Til þess að við getum svo setið þar, með blóðblandið óbragð í munni og sáran afturendann á plussklæddum stól – og hlýtt á stóru strákana tuða um bágborið ástand heimsins?
Til þess eins að sjá þá svo fara í fýlu einn af öðrum þegar loks kemur að því að samþykkja eitthvað sem skiptir máli?
Til þess að stíga í pontu og hlusta á flissið og háði blandið muldrið þegar hinar aðildarþjóðirnar fletta Íslandi forviða upp á Wíkípídíu í símunum sínum?
Nei. Við höfum nákvæmlega ekkert að sækja á slíka samkundu hártogs og málamiðlanna. Nema hugsanlega stórkostlega gott kaffi og framúrskarandi bakkelsi.
Já, og vel á minnst, Burkina fokkings Faso er í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna.
.
Ehemmn. Er þetta ekki kvart?
Mér sýnist þetta vera kvart eða að minnsta kosti nöldur.Starir þegjandi út í loftið
Gæti líka flokkast undir tuð.