Heyrðu væni, áttu áttu?
Er eitthvað sem að lengur máttu?
Heyrðu væni, áttu áttu?
Er eitthvað sem að lengur máttu?
Er boðháttur af knega knáttu?
Heyrðu væni, áttu áttu?
Er eitthvað sem að lengur máttu?
Er boðháttur af knega knáttu?
Komst þú heim um miðja náttu?
Gat nú einhver gabbað þig?
Gætir þú nú platað mig?
Gat nú einhver gabbað þig?
Gætir þú nú platað mig?
Hrekkir einhver sjálfan sig?
Gat nú einhver gabbað þig?
Gætir þú nú platað mig?
Hrekkir einhver sjálfan sig?
Sýnist þér hér ris og hnig?
Hvar ætlarðu'að krossa'eftir átta daga?
Hvar ætlarðu'að krossa'eftir átta daga?
Ertu nú tilbúinn vagninn að draga?
Hvar ætlarðu'að krossa'eftir átta daga?
Ertu nú tilbúinn vagninn að draga?
Viljum við Ísbjörgu áfram til baga?
Hvar ætlarðu'að krossa'eftir átta daga?
Ertu nú tilbúinn vagninn að draga?
Viljum við Ísbjörgu áfram til baga?
Endurtekst bráðlega samningasaga?
Hvort munu eyfirskir ofvitar vinna?
Ætti ekki spurningum bráðum að linna?
Hvort munu eyfirskir ofvitar vinna?
Ætti ekki spurningum bráðum að linna?
Mætti nú húsvískan hálfvita kynna?
Hvort munu eyfirskir ofvitar vinna?
Ætti ekki spurningum bráðum að linna?
Mætti nú húsvískan hálfvita kynna?
Heyrðuð þið köttinn músum brynna?
Er auður þinn í skattaskjóli?
Skyldu dekkin rúlla á hjóli?
Er auður þinn í skattaskjóli?
Skyldu dekkin rúlla á hjóli?
Er lán á hverju byggðu bóli?