Er að þessu loknu líf?
Eigum við til nokkur híf?
Hvað skal gera við slitna slíf?
Er að þessu loknu líf?
Eigum við til nokkur híf?
Hvað skal gera við slitna slíf?
Slærðu hána meðan ég þríf?
Stamar þú ef stórt er spurt?
Stukku börnin langt í burt?
Stamar þú ef stórt er spurt?
Stukku börnin langt í burt?
Langt í burtu? Hvernig? Hvurt?
Stamar þú ef stórt er spurt?
Stukku börnin langt í burt?
Langt í burtu? Hvernig? Hvurt?
Hvernig viltu brauðið smurt?
Er snilligáfan skattaskyld?
Skoðast þessi lína gild?
Er snilligáfan skattaskyld?
Skoðast þessi lína gild?
Fór með landið fjármagnssnilld?
Er snilligáfan skattaskyld?
Skoðast þessi lína gild?
Fór með landið fjármagnssnilld?
Fæst nú metin viðskiptavild?
Hvernig skyldi kjósa næst?
Kemst sá að er galar hæst?
Hvernig skyldi kjósa næst?
Kemst sá að er galar hæst?
Vitið þið hvar fiskur fæst?
Hvernig skyldi kjósa næst?
Kemst sá að er galar hæst?
Vitið þið hvar fiskur fæst?
Er fangageymslan ekki læst?
Er í krosstrjám ekkert hald?
Er í krosstrjám ekkert hald?
Er í sumum hurðum spjald?
Hví er æ við gjöfum gjald?
Er í krosstrjám ekkert hald?
Er í sumum hurðum spjald?
Hví er æ við gjöfum gjald?
Gefur þú þér æðra vald?