Á hinum ágæta þræði Vjer munum þar hefur farið fram ágætis spjall um Sinclair, Amstrad, Apple IIe og fleiri eldri tölvur. Kannski er kominn tími á að færa það hingað yfir.
Flytur hingað
Kemur inn með nánast ónotaða nintendo, þessa gömlu sko, í orginal kassanum
Veit einhver hvað þetta er ?
Fer niður í kjallara ogfinnurCommodore 64 tölvuna sína... þessa með kassettutækinu... sem var alltaf bilað.
Fær rykkorn í augað er hún rekst á orðið Sinclair
Ég átti Sinclair Spectrum og glás af leikjum, en þeir bestu fannst mér Hobbit, Valhalla og Arkanoid. Síðan átti ég líka Commodore, en fannst hún aldrei eins aðlaðandi og Sinclair. Nintendo átti ég líka og þar man ég eftir leik sem ég hef oft saknað og hét sá Lolo.
Átti enginn annar BBC tölvu?
Jú, vjer eins og fram kom í vjer munum þræðinum. Það var skemmtileg græja sem ótrúlega auðvelt var að tengja við ýmsar aðrar græjur, m.a. aðrar BBC tölvur. Vjer vorum m.a.s. um tíma með e.k. frumstætt 'heimilisstaðarnet' strax á 9. áratugnum (!) þegar einn vinur vor kom með sína BBC tölvu til vor Ljómar upp.
Félagi minn átti BBC, okkur þótti það óttalegt skran, en höfðum þó gaman af. Man eftir einum leik sem var með steinaldarmanni að berja risaeðlur, ótrúlega frumstæð en flott teiknimyndagrafík .
Vinur minn átti ZX81 og við strákarnir hlógum heil ósköp að honum þegar við áttum Sinclair Spectrum. Kunningi minn átti Vic20 sem var forveri Commodore 64. Ég hins vegar lærði á Apple II í skólanum. Þegar í menntaskóla var komið lærði ég aðeins á IBM sem var einn stór kassi með pínulitlum skjá í. Árið sem ég bjó í Hollandi lærði ég svo að forrita gagnagrunn í Basic. Það var áhugavert.. gjört á Philips tölvur.
Á Sinclair Spectrum man ég sérstaklega eftir einum leik, Dictator. Þar átti maður að stjórna ríki með harðri hendi. Ég og frændi minn gátum gleymt okkur yfir honum svo tímunum skipti. Svo var líka einn leikur sem hét Rock'n'roll og gekk út á að vera umboðsmaður rokkhljómsveitar. Ákaflega skemmtilegt allt saman. Svo var hægt að fá viðbót með íslenskum stöfum... það þótti flott.
10 print "Eg er bestur";
20 goto 10
30 stop
Those were the days...
Í bókinni sem fylgdi Sinclair var smá hangman-forrit (í Basic) og gat maður skrifað það upp. Það var svo skynsamt að það lærði jafnóðum* og leikurinn var spilaður og stækkaði því orðagrunnurinn eftir því sem leikurinn var spilaður.
*Reyndar byggðist sá lærdómur á að maður mataði forritið á orðum, sem það notaði svo til leiksins og maður sagði því í lokin að væru gild orð.
Vjer munum núna allt í einu eftir fyrstu tilraunum við að forrita Spectruminn (fyrsta tölva vor). Ákafinn var nokkuð mikill og því nenntum vjer eigi að lesa handbækurnar nema það væri algjör nauðsyn. Einu slíku tilviki munum vjer eftir er kom upp á fyrstu dögunum. Þá vorum vjer farnir að reyna að gera það flókna hluti að vjer rákum oss á að það var eiginlega nauðsynlegt að geta haft margar breytur sem hjetu allar sama nafni en sem hægt væri að greina á milli með einskonar númeri. Þarna höfðum vjer semsagt sjálfir uppgötvað þörfina fyrir array Ljómar upp. Mikil varð síðan gleði vor er vjer komumst stuttu síðar að því að þetta var hægt með DIM og tölu í sviga aftan við breytunafnið Ljómar upp í tölvunostalgíu.
10 print "Eg er bestur";
20 goto 10
30 stop
Those were the days...
hmm til hvers er lína 30? hún verður aldrei keyrð?
Reynir að muna hvort stop hafi verið nauðsynlegt til að ljúka forriti... en man það ekki
10 print "Eg er bestur";
20 goto 10
30 stop
Those were the days...
hmm til hvers er lína 30? hún verður aldrei keyrð?
Reynir að muna hvort stop hafi verið nauðsynlegt til að ljúka forriti... en man það ekki
Þetta er talinn vera fyrsti forritunarbrandarinn
Ég man er við bræðurnir eignuðumst amstrad með minniskubbi og diskettudrifi. Það fylgdu einhvur skrifstofuforrit, en þau voru lítt brúkuð. En mikið assgoti var þetta mikil framför frá eldri amstradinum að þurfa ekki að nota spólur. íhugar hvort amstrad gæti enn leynst í foreldrahúsum
Um síðustu helgi fór fram útför gamla góða Victors vpcII. Ótrúlegt hvað það þurfti stóran kassa utan um 30 mb harðan disk. Lifi minning Victors. fær rykkorn í augað um sama leiti og hugurinn berst að railroad tycoon og prince of persia
Átti enginn annar BBC tölvu?
Jújú ein svoleiðis var til svo Amstrad. Fyrsti PC var 386 25SX hehe alveg hörkku græja með Windows 3.0
Nintendo 64 og Goldeneye í fjórskiptum skjá var lífið!
Annars var ég að finna Goldeneye hérna í vikunni en nú finn ég ekki tölvuna! Ég veit ekki hvað ég á að gera! Grúfir höfuðið í höndum sér
Átti einhver Pole position á Sinclair Spectrum?
Átti einhver Pole position á Sinclair Spectrum?
Ó já
Það var skemmtilegur leikur... en miklu skemmtilegri í spilakassanum.