Steppar í takt við stórglæsilegan flutning Nermals
Eru ekki fleiri en vjer sem sakna þess að ritstjórn skuli ei hafa lesið jólakveðjur á Baggalúti síðan árið 2005 ? Vjer eigum þær kveðjur m.a.s. líklega einhversstaðar á ofurtölvu forsetaembættis Baggalútíu Saknar hinnar einu sönnu jólastemmningar sem eigi hefur sjest hjer í fjögur ár.
Minnist þess þegar kettirnir hans voru að eltast á og spóluðu báðir á gólfinu eitt augnablik þannig að það kom út eins og þeir væru að dansa steppdans
Hendir mandarínu til Vlads.
Eru ekki fleiri en vjer sem sakna þess að ritstjórn skuli ei hafa lesið jólakveðjur á Baggalúti síðan árið 2005 ? Vjer eigum þær kveðjur m.a.s. líklega einhversstaðar á ofurtölvu forsetaembættis Baggalútíu Saknar hinnar einu sönnu jólastemmningar sem eigi hefur sjest hjer í fjögur ár.
Saknar einnig
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer fundum jólakveðjurnar frá árinu 2005. Þær eru alls 43 mínútur og 43 sekúndur Ljómar upp eins og 999 metra hátt plútóníumjólatrje og byrjar að horfa og hlusta í gríðarlegri nostalgíu.
Reynir að hlera í þeim tilgangi að komast í áður óþekkta jólastemmningu
Texi Everto
Haffajól til allra gestapóa. Jólasveinninn hatar mig enn Brestur í óstöðvandi grát
Hugheilar og hálfar jóla og áramóta kveðjur til allra Gestapóa, Madaman þakkar skemmtilegar stundir á árinu sem er að líða og ætlar að sér eyða þeim ennþá fleiri a því herrans árin tíumínútur yfir átta að kveldi. 20:10.
Til hamingju með jólin.
Þakka fyrir allt liðið sem hefur verið hér á Gestapó á árinu.
Línbergur Leiðólfsson.
Hafið það gott lömbin mín. Borðið eitthvað gott og hagið ykkur vel.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer, Vladimir Vasilievich Fuckov, óskum Bagglýtingum nær og fjær hjer með formlega farsælla jóla og gleðilegs komandi árs. Bregðist minnið oss eigi eru fáein ár síðan óvinir ríkisins fengu að fljóta með í svona kveðjum og fá þeir því lítilsháttar kveðjur líka en það ber þó alls ekki að skilja sem svo að listinn ógurlegi sje eitthvað að fara að styttast heldur þvert á móti.
Gleðileg jól. xT
Frá Þarfaþingi berast 100 ampera stuðkveðjur í tilefni rísandi sólar og afmælis Sússa. Étið, drekkið og verið glöð - ellegar munið þið hafa verra af!
~~ Þarfagreinir, greifinn af Þarfaþingi
Gleðileg jól elsku póakrúttin mín. Hafið það alltaf sem sem best og sérstaklega nú um jólin. xTxTxT
Leggur svo á og mælir um, að jólin verð öllum póum góð og gleðirík.
Kv, Galdri.