Var gefið að borða.
Gott hjá þér enda ömurlegt s****pleis.
Villtist og fann flottan stað til að drepa tíman á eftir áramót þegar róast hjá mér.
Fór út í frábæran líkamsræktartíma.
Ég fékk góða afgreiðslu í bílaumboði sem áður fyrr var alræmt fyrir að vera ömurlegt. Ég er enn að jafna mig á menningarsjokkinu. Aldrei hef ég séð fyrirtæki taka eins miklum pólskiptum í þjónustustigi.
Ég ætlaði að ganga inn á varahlutadeildina og kom inn í eitthvað sem gæti verið bankaútibú, með þægilegum biðstólum, Little Britain í sjónvarpinu, kökur og kaffi og nettengdar tölvur. Fékk samt ekki tækifæri til að nota aðstöðuna þar sem ég fékk skjóta afgreiðslu á varahlutalager af manni sem sat við gjaldkeraborð. Síðan ákvað ég að prófa að taka miða og setjast í svona þjónustuklefa (eins og í bönkum) þar sem ég gat talað við verkstæðisþjónustufulltrúa og fékk tíma strax á morgun þar sem viðgerðin er minniháttar.
Ég gekk dasaður út og var ekki viss um hvort ég hafi verið að borga reikninga í banka eða kaupa skitinn varahlut í bíldrusluna mína.
Ég kláraði fyrsta próf af fjórum.
Ég kom bara assgoti vel út úr stærðfræðiprófi sem allir hafa sagt mér að sé helvíti erfitt.
Svo keypti ég mér 100 g af fyrstu uppskeru Assam tei, og það var yndislega gott!
Las mikið af skrifum Gestapóa. Gaman, gaman.
Ég lagði mig seinnipartinn og náði að sofa í tvo tíma.Gefur frá sér vellíðunarstunu
Mér áskotnaðist bíómyndin Hot Rod eftir gaurana sem mynda grínhópinn The Lonely Island, ég ætla að fara að horfa á hana núna. Hafið mig afsakaðan.
Ég vaknaði í morgun, það var nóg.
Það er nú engin spurning um að besta stund dagsins var þegar ég fattaði hvernig ég get útskýrt að Gestalt-hyggja er andstæðan við smættahyggju þegar kemur að því að útskýra kenninguna um félagslega samsemd út frá gagnrýni Mary Jahoda á inntak félagssálfræði!
Nú ætla ég að vona að það besta sem komi fyrir mig á morgun sé að ég verði spurð um það hvernig kenningin um félagslega samsemd svarar þessari gagnrýni hennar Maríu... Skoppar um eins og geðsjúklingur í koffín-rússi (sem súg eiginlega er, á þessu stigi málsins)
Að ég mætti Jesúsi . Hann var á hraðferð eins og venjulega . Ég bað hann að hjálpa mér með smá hlut og hann sagði að hann gæti kanski reddað því eftir jól .
Ég virti fyrir mér dögun í Elliðaárdalnum. Það var fallegt. Hin saklausa og vinalega Elliðaá belgdi sig upp og reyndi að vera stórfljót. Það tókst næstum því.
Elliðaárnar eru vissulega stórfljót, svona miðað við höfðatölu.
Ég kom heim og aftur á Gestapó eftir nokkurra daga fjarveru.
Ég fékk egg, beikon, ristað brauð og amerískar pönnukökur með hlynsýrópi í morgunmat.
Mér gekk bara vel á prófi ...dauðans...